Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2006, Side 8

Heima er bezt - 01.03.2006, Side 8
Sumarbústaður sem fluttur var frá Lögbergi í Kópavog. Pétur Pétursson, Ragnheiður Asta, Guðrún Eiríksdóttir og Hanna Elsa Jónsdóttir, vinkona Ragnheiðar Astu, fyrir framan bústaðinn. við húsin. Svo vorum við saman í boltaleik og alls konar útileikjum og róluvöllurinn okkar var Paradís. Eg man vel eftir fyrsta deginum í skólanum. Pabbi leiddi mig upp í skóla til að taka próf í lestrarkunnáttu. Það var Valgerður Briem sem prófaði mig. Eg var alveg læs og rann í gegnum blaðið. Þá var talið að ég hefði kunnað þetta utanað og ég fékk annað blað til að lesa og flaug í gegnum það líka. Eg man þetta afskaplega vel, einnig man ég vel eftir fötunum sem ég var í. Foreldrar mínir höfðu verið í Sviss um sumarið og keyptu handa mér gráa jerseydragt. Mér stóð mikill stuggur af skólahúsinu, fannst ég vera að ganga í björg þegar við Ragnheiður Ásta íþjóðbúningi á 17.júní 1944. pabbi fórum þar inn fyrsta sinni. Þetta er þó ein stórkostlega skólabygging á landinu.Við höfðum sama kennara öll árin í Austurbæjarskólanum nema fyrsta mánuðinn. Hann hét Jakob Sveinsson og var svo góður að ég kallaði oft mamma, þegar ég ætlaði að segja kennari. Þá byrjuðu bömin í skóla 7 ára og 7, 8 og 9 ára börn byrjuðu í byrjun september en eldri bekkimir 1. október. Eg er svo heppin að á heimilinu var mikil ást á dýrum og við áttum alltaf hund. Pabbi var alltaf að kenna mér að þekkja fugla og greina hljóðin í þeim. Þegar við fómm út fyrir bæinn kenndi hann mér að þekkja grös og blóm. Ég er þakklát fyrir það hvað ég ólst upp á góðu heimili, þar sem ríkti gleði og ástúð. A heimilinu varGuðrún Eiríksdóttir, náfrænka Svavars Guðnasonar listmálara og Þórbergs Þórðarsonar. Hún kom ung á heimili langafa míns og langömmu, var ekkert skyld mér en hún var þó aðal amma mín, hinar ömmur mínar voru annars staðar. Hún annaðist íjórar kynslóðir bama, ömmu mína og systkini hennar, mömmu, mig, og drengina mína. Hún kenndi þeim báðum að lesa með bandprjónsaðferðinni, eins og mér. Gunna amma var 63 ára þegar ég fæddist. Það var Elísabet amma líka, þær vom báðar peysufatakonur. Anna amma var yngri en þær. Þetta voru skemmtilegir skörungar. Mamma átti 5 systkini á lífi og pabbi 9, og það voru miklir systkinakærleikar með foreldrum mínum og systkinum þeirra. Ömmubræður mínir og afasystkini vom líka mikils virði í lífi okkar. Þegar ég var fermd var ekki búið að reisa Háteigskirkju en söfnuðurinn hafði aðgang að hátíðarsal í Sjómannaskólanum og þar vom haldnar messur. Þangað gengum við til prests. Séra Jón Þorvarðsson fermdi okkur í Dómkirkjunni 1. maí 1955 . Ég man eftir því að það var búið að vera mikið verkfall og það var kvíði í fólki um að hugsanlega yrði hasar 1. maí. Verkfallið leystist sem betur fer áður og allt fór eðlilega fram. Við voru 60 börn, sem fermdumst saman. Þegar Austurbæjar- skólanum lauk fór ég í Lindargötuskólann, okkar hverfi var skólaskylt þar. Guðrún Hallgrímsdóttir, sem var skólasystir mín frá byrjun til menntaskólaloka, fermdist með mér. Hún var skírð rétt áður en við fermdumst, og ég man hvað ég dáðist að henni á dansæfingu, þegar hún sagði: „Strákar, ætlið þið ekki að dansa við mig, ég er í skímarkjólnum'*. Bekkurinn minn úr bamaskóla skiptist en við höfðum verið saman frá Pétur Pétursson og Birna Jónsdóttir, foreldrar Ragnheiðar Astu. 104 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.