Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2006, Síða 10

Heima er bezt - 01.03.2006, Síða 10
Jónas þriggja ára, Jón Múli fimm ára. Ragnheiður Asta í Útvarpinu. úr málmi. En borgaryfírvöld lögðu mikið upp úr því að rífa hana. Þama vann ég eitt sumar, þegar ég var stelpa. I garðinum fékk hann stundum lúðrasveitir til að spila á góðviðrisdögum og þar hafði pabbi garðstóla og lítil borð, sem Sveinn Kjarval teiknaði fyrir hann. Svo rak pabbi á Laugavegi 28, söluturn, sem löngu er horfinn. Svo kom faðir minn aftur til Utvarpsins. Þá var ég að vinna þar og setti hann inn í starfið. Þegar ég byrjaði að vinna í útvarpinu, var ég tvítug og þá þekkti ég Solla með Fífu. margt af fólkinu góða, sem starfaði þar. Það hafði verið vinnufélagar pabba þegar hann var þar í fyrra skiptið. Þá var Utvarpið á Skúlagötu, ég kunni afar vel við mig þar. Þegar Útvarpið átti stórafmæli í fyrra fannst mér þetta ekki vera afmæli Útvarpsins, miklu fremur afmæli Sjónvarpsins. Þetta var í rauninni afmæli Rásar eitt, enda er hún stundum köliuð Gamla gufan. Mér fannst eins og það vildi gleymast að geta um öll þau miklu menningarafrek, sem þar vom unnin, t.d. Útvarpshljómsveitina, Útvarpskórinn og tungumálakennsluna. Helgi Hjörvar, Jónas Þorbergsson, Vilhjálmur Þ., Andrés Björnsson, Árni Kristjánsson, faðir minn, Jón Múli, Baldur Pálmason, Þorsteinn Ö. Stephensen, Jón Magnússon og margir fleiri höfðu unnið þar merkileg störf. Raddir þessara manna heyrðust lengi. Jón Múli og pabbi sáu um marga þætti í Útvarpinu. Til margra ára sá Jón Múli um morgunútvarpið og ekki má gleyma djassþáttum hans. Hann lagði mikla vinnu í morgunútvarpið og fór á hverjum morgni í bæinn, keyrði um helstu göturnar til að fylgjast með öllu sem þar gerðist. Líklega er mörgum í fersku minni þegar hann vor hvert, sagði frá því að krían væri komin í Hólmann í Tjörninni. í nokkur ár sá ég um þætti 17. júní, fyrsta vetrardag og á þrettándanum. Einnig um tíma um morgunútvarpið á móti Kristni Sigmundssyni. Allt þetta var skemmtilegt. Þegar ég fór í morgunútvarpið saknaði ég vaktanna, sem fylgja þularstarfmu. Það voru tvískiptar vaktir, við sem gengum vaktir byrjuðum klukkan 12 og vorum til klukkan 18 eða frá 18 til dagskrárloka. Eg var á 16 tíma vöktum þriðju hverja helgi, bauð góðan dag og góða nótt. Morgunþulir unnu ekki á sunnudögum. Fyrst þegar ég byrjaði í Útvarpinu vorum við þrjú á vöktunum, Ragnar Tómas Ámason, Jóhannes Arason og svo ég. Við Jóhannes erum alltaf nánir vinir. 106 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.