Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2006, Síða 12

Heima er bezt - 01.03.2006, Síða 12
Ragnheiður Asta ogJón Múli. Aftari röð: Sólveig Anna, Oddrún Vala, Ragnheiður Gyða, Hólmfríður og sonur hennar Jón Múli Franklínsson. Jón Múli „Ég hef alltaf þekkt hann Jón minn Múla. Það var 20 ára aldursmunur á okkur. Þegar pabbi vann í útvarpinu í fyrra skiptið, vann Jón þar líka. Þegar Jónas, bróðir Jóns, og Guðrún móðursystir mín, giftust, þá kynntist ég þessu fólki. Jón og Þórunn fyrsta kona hans, voru oft gestir heima hjá foreldrum mínum. Ég kom stundum heim til móður hans þegar ég var barn. Þau áttu þá heima í Þingholtunum. Brenna, sem móðir Jóns var kennd við, var hlaðið steinhús, þar sem bakaríið er núna. Það er langt síðan Brenna var rifín, Jón, systkini hans og Atli, sonur Helga í Brennu, seldu lóðina eftir að Ragnheiður og Helgi, bróðir hennar í Brennu, létust.“ Hvaðan er Jón Múli ættaður ? „Móðir Jóns var Reykvíkingur, Ragnheiður Jónasdóttir, Ranka í Brennu, en faðir hans var Þingeyingur. Afí hans var Jón í Múla í Aðaldal, faðir hans Árni frá Múla og Jón sjálfur Jón Múli. Jónas Guðbrandsson var faðir Ragnheiðar en hann hét Jónas vegna þess að Jónas Hallgrímsson vitjaði nafns hjá móður hans. Við Jón Múli vorum vinir og höfðum líkar pólitískar skoðanir, og ástin spyr ekki um aldur. Þegar við Gunnar Eyþórsson skildum fórum við Jón að búa saman. Börnin okkar voru orðin vinir. Við giftum okkur árið 1974. Jón var afskaplega ljúfur maður og fallegur. Bræðumir Jón og Jónas vora miklir vinir en um margt ólíkir. En þeir voru báðir góðir menn, greindir og afar skemmtilegir. Jón sagði mér oft frá Jónasi afa sínum og Guðríði ömmu sinni í Brennu og líka frá frændfólkinu á Grænavatni í Mývatnssveit og á Seyðisfirði.“ Ragnheiður Ásta og Jón Múli bjuggu saman í næstum 29 ár, lengst í Keldulandi. Þarna er sérstaklega gott nágrenni, allt fólkið á stigaganginum eru vinir. „Þetta góða samkomuleg gerir svo mikið fyrir alla,” segir Ragnheiður Ásta. „Jón lagði mikið upp úr því að lýsa upp grenitréð úti í garðinum fyrir jólin og sá um það meðan hann gat. Þegar tréð tók að stækka varð hann að príla upp á borð og naut aðstoðar annarra íbúa hússins. Jóhanna, Erla og Dódó nágrannar okkar, studdu við borðið. Konurnar hvöttu Jón og úr varð oft mikil kátína á meðan á þessu stóð. Eftir að Jón varð veikur var það dóttursonur Jóhönnu, sem kom Ijósunum á tréð. Síðustu jólin sem Jóhanna og Jón lifðu, komst hún aðeins út í dyrnar hjá sér til þess að sjá tréð í fullum skrúða og Jón fór stutta stund út á svalimar. Þaðan horfði hann á grenitréð í hátíðarbúningi í síðasta sinn. Á vetrarkvöldum stóð Jón oft úti á svölum og horfði á stjörnurnar. Hann þekkti þær og hafði yndi af að fylgjast með gangi himintungla. Hann var líka óþreytandi að sýna mér þær og segja mér frá þeim. Þjóðvinafélagsalmanakið var honum alltaf sent um leið og það kom út, sú bók var mikið lesin og er enn ómissandi á heimilinu. Jón lést 1. apríl 2002, daginn eftir að hann varð 81 árs. Hann hafði lengi verið heilsuveill. Það gerðist margt í lífí Jóns Múla í kringum 1. apríl. Hann byrjaði til dæmis að vinna í útvarpinu þann dag.” Ég spyr Ragnheiði Ástu að því hvort hún sé dulræn, svarar hún því neitandi, hún hugsi ekkert um þá hluti. En hún segist vita af þeim sem eru farnir og eru henni nákomnir. Þeir lifl í huga sínum. „í ætt minni er afskaplega mikið sögufólk. Gunna amma mín kunni mikið af sögum, þulum og kvæðum og hún söng fyrir mig og kvað. Hún sagði mér mikið frá fortíðinni. Mamma var mikil sögumanneskja, leikari og eftirherma. Hún var líka vel hagmælt eins og pabbi og mamma hans. Hún var mikill húmoristi, létt og kát en þó alvörumanneskja. Móðir mín skrifaði mikið, hún sagði mér frá því að einn kennarinn í Verslunarskólanum sagði við hana: „Þér verðið að verða rithöfundur fröken“. Allir sem eiga góða og fróða foreldra búa að því alla ævi. Ég ólst upp við afskaplega gott heimilislíf á menningarheimili. Við bjuggum í lítilli þriggja herbergja íbúð í Holtunum. Á þessum tíma voru mikil húsnæðis vandræði í Reykjavík. Amma mín og móðursystir mín með lítinn dreng, bjuggu hjá okkur um tíma. Það var mjög gestkvæmt á heimilinu og oft næturgestir. Rúm foreldra minna var sett upp á daginn svo að gólfplássið yrði meira. Faðir minn teiknaði rúmið og skápinn, sem það féll inn í. 108 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.