Heima er bezt - 01.03.2006, Side 19
ritfangaverslunum. Hinir breiðustu
eru notaðir sem merkipennar en mjórri
fíltpennar eru vinsælir sem venjuleg
skriffæri.
Blek
Vitað er að Kínverjar voru komnir með
svart túss um 1200 f. Kr. I því var sót,
fengið við brennslu á furuviði, leyst í olíu
sem blönduð var gelatíni úr asnahúð, og
í þetta bætt ilmefni, moskus, til að eyða
fýlunni. Samkvæmt sumum heimildum
má rekja tússblekið til ársins 2697 f. Kr.,
þegar maður, sem hét Tien-Lcheu, á að
hafa fundið það upp.
Til forna fékkst blek með ýmsum
litarefnum úr berjum, plöntum eða
dýrum, og hver litur hafði ákveðið
tilfínningagildi. Eins og tilfínningamar
dofnuðu sumir þessir litir með tímanum.
Varanlegt blek kom svo fram um 400 e.
Kr., vatnslausn afjárnsöltum, sútunarefni
eða tanníni (sem fékkst úr eikargalleplum,
sjúklegum hnúðunr á eikartrjám) og
gúmkvoðu. Þessi uppskrift var notuð,
að mestu óbreytt, í margar aldir. Þetta
gamla blek var litlaust, en varð blásvart
þegar það þornaði á pappír eða bókfelli.
Það breyttist svo með aldrinum og varð
brúnt, eins og sést á mörgurn gömlum
handritum.
Um nriðja nítjándu öld verða miklar
breytingar í litarefnaiðnaði með tilkomu
anilínlitarefna í ýmsum litum. Anilínblek
tærirpenna og ritfleti mun minna en eldri
gerðimar. Enn í dag eru anilínlitir í nær
öllu bleki sem notað er til skrifta. Auk
þess eru í blekinu viðbótarefni, svo sem
etílenglýkól, sem eykur seiglu þess, og
fenólefni, sem vinna gegn bakteríugróðri.
Skærblátt blek (Royal Blue, Königsblau),
næst úr flíkum í þvotti, en blásvart eða
svart blek er vatnshelt og er til dæmis
notað sem skjalablek. Raunar er hægt að
fá blek í nær öllum regnbogans litum.
Blek til notkunar í prentiðnaði er
talsvert annars eðlis, meðal annars
seigara, og kúlupennablek minnir
nokkuð á það.
Heimildir að þessum pistli eru einkum sóttar
á netið, en lesendum Heima er bezt skal bent
á fróðlega grein um papyrus og pappír eftir
Jón R. Hjálmarsson í 2. tölublaði þessa árs,
bls. 87-88.
MYNDBROT
Átt þú í fórum þínurn skemmtilega mynd, t.d. af atburði, staö, húsum, dýrum
eða fólki, sem gaman væri að birta í Myndbroti?
Ef svo er því ekki að senda okkur hana til birtingar og
leyfa lesendum HEB að njóta hennar líka?
Mjólkurflutn ingar.
Við hlóðirnar.
HEB 1952.
Þannig var það
Heyskapur.
Mjaltir.
Steðji og klappa.
notað til að klappa
gömlu Ijctina.
Heima er bezt 11 5