Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2006, Qupperneq 41

Heima er bezt - 01.03.2006, Qupperneq 41
öllubarþó 42 línu biblíanfrá 1455. Hefurhún löngumverið kennd við Gutenberg og þykir eitt fegursta bókverk sem nokkru sinni hefur Iitið dagsins ljós. Af þessari fögru bók munu enn vera til 40-50 eintök og þar af tólf bækur prentaðar á pergament. Fátítt er að bók þessi sé boðin til kaups, en beri það við, þá er verðið óheyrilega hátt, enda má segja að slíkt listaverk sé nánast ómetanlegt til fjár. Samstarf Gutenbergs og peningafurstans í Mainz gekk illa og slitnaði að lokum upp úr því vegna ágreinings um íjármál. Höfðaði kaupmaðurinn þá mál á hendur Gutenberg sem prentarinn tapaði og neyddist til að láta af hendi sinn hlut í prentverkinu. Jóhannes Fust hélt starfseminni áfram og fékk þá til liðs við sig einn af lærlingum Gutenbergs, Peter Schöffer að nafni. Gekk piltur þessi brátt að eiga dóttur kaupmannsins og fékk prentsmiðjuna með henni. Reyndist hann bæði verklaginn og hugkvæmur og meðal annars fann hann upp nýja tegund af prentsvertu sem bæði entist betur og hafði fallegri áferð en eldri efni. Þóttu bækur frá hendi Peters Schöffers bæði fagrar og hinar vönduðustu að allri gerð. En Gutenberg missti ekki móðinn þótt hann tapaði prentsmiðju sinni. Ymsir vinir hans og stuðningsmenn öfluðu íjár svo að gæti stofnað nýja prentsmiðju og haldið áfram við bókagerð. Vann hann við þessa starfsemi um skeið, en hætti síðan þegar hann fékk embætti við hirð erkibiskupsins í Mainz, sem hann gegndi til æviloka. Þessi listfengi uppfinningamaður andaðist árið 1468, rúmlega sjötugur að aldri. Þótt svo færi að Gutenberg hlyti ekki auð og frægð fyrir uppfinningu sína, þá lifðu verk hans áfram og upp úr þessu fór prentlistin sigurför um heiminn. Um það leyti sem hann féll frá voru komnar prentsmiðjur í mörgum borgum Þýskalands sem og allvíða í Frakklandi og á Ítalíu. Um aldamótin 1500 hafði prentlistin fest rætur í nær öllum löndum Evrópu. Prentaðar bækur voru í fyrstu afar dýrar, ef miðað er við það sem gerist nú á dögum. En þrátt fyrir það voru þær samt ódýrari en handskrifaðar bækur, svo að ekki var saman að jafna. Með tilkomu prentlistarinnar barst líka miklu meira af rituðu máli til margfalt stærri lesendahóps en áður hefði verið hugsanlegt. í fyrstu nutu prentaðar bækur ekki mikils álits og þóttu ekki standast samanburð við vel gerð handrit. En þetta stóð til bóta og brátt fóru prentaðar bækur með fullan sigur af hólmi. Frá elstu tímum ritlistar hér á landi voru hér jafnan margir athafnasamir rithöfundar og miklir snillingar í að skrifa handrit á bókfell, svo sem dæmin sanna. Einnig barst prentlistin snemma hingað eftir að hún kom til sögunnar. Það gerðist þegar Jón biskup Arason á Hólum keypti prentvélar í Hamborg og flutti til landsins um 1530. Prentsmiðju sína setti hann niður á Breiðabólstað í Vesturhópi og fékk til hennar sænskan prentara, Jón Matthíasson að nafni. Fátt er kunnugt um það sem Jón Arason lét prenta, en v—i I Biblía Gutenbergs frá 1455. Prentunin. þar á meðal var bænakver á latínu, Brevarium Holensis, sem slitur af hefur varðveist til þessa dags. En fyrsta stóra verkið sem prentað var á fslensku var Nýja testamentið í þýðingu Odds Gottskálkssonar, en það var prentað í Hróarskeldu árið 1540. En skömmu eftir að prentvélar Jóns biskups komu til landsins hófst ófriður í sambandi við siðaskiptin, svo að minna varð úr bókagerð hans en skyldi. Það var svo ekki fyrr en nokkru eftir að þessi dugmikli biskup hafði verið hálshöggvinn í Skálholti að boði konungs árið 1550, sem þráðurinn var tekinn upp að nýju. Það gerði siðbótarhetjan Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup. Hann keypti prentsmiðju Jóns og lét flytja hana heim á staðinn. Þar hóf hann síðan umfangsmikla prentun og útgáfu bóka. Mesta afrek hans á þeim vettvangi var Guðbrandsbiblían svonefnda, sem út kom árið 1584. Var hún fagurlega gerð, í góðu bandi og vel til hennar vandað í hvívetna, enda kostaði hún þrjú kýrverð. Biblía Guðbrands er alltaf talin fyrsta meiriháttar bókin sem prentuð var hér á landi og með útgáfu hennar hafði prentlistin, uppfinning Jóhanns Gutenbergs, öðlast fastan og varanlegan sess hjá bókaþjóðinni hér á landi. ■ | Heimaerbezt 137

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.