Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2006, Qupperneq 44

Heima er bezt - 01.03.2006, Qupperneq 44
fararstjórinn og leggur arminn yfír herðar drengsins, svo tekur hann farangurinn í hina höndina og Sigrún fylgir þeim ferðalöngunum út á hlaðið þangað sem reiðskjótarnir bíða. Nafnamir kveðja móður og eiginkonu, hlýtt og innilega. Svo stíga þeir á bak og halda á brott. Sigrún stendur kyrr og horfir á eftir þeim skeiða út veginn, heit gleði fyllir hjarta hennar. Hún er svo ósegjanlega rik að eiga þá báða... * * * Veturinn rennur sitt skeið í tíma og rúmi. Skólanámið á Fossi er skemmtilegt og sækist með ágætum og glaðir leikir æskunnar örva fjör og þrótt. Oli í Nesi hefur beðið Sverri vin sinn að fá leyfi til þess að mega gista yfír eina helgi í Nesi. Oli hefur nýlega eignast skauta, að vísu nokkuð notaða, en ágæta samt. Tjöm ein stór, skammt frá Nesi, er búin að vera lengi vetrar ísilögð og því öruggt skautasvell. En Ola finnst ekkert sérlega spennandi að renna sér þar einn á skautum, með Sverri yrði það hreinasta ævintýri. Óli veit að Sverrir á nýlega skauta en hefur sjaldan notað þá. Honum er líkt farið og Óla sjálfum, hann vantar félaga með sér á skautasvellin hjá Hamraendum. Leyfið fyrir helgargistingu í Nesi var auðfengið og Sverrir litli er nú mættur þangað. Tunglsskinsbjartur vetrarhimin skartar sínu fegursta yfir snævi þakinni jörð. Óli og Sverrir tygja sig að heiman frá Nesi, með skautana í farteskinu. Sigrún litla fylgist náið með þeim félögunum fyrst í stað, en byrjar svo að tína fram sinn eigin útifatnað. - Þú ferð ekki að elta okkur Sverri, Sigrún, segir Óli valdsmannslega. - Þú hefur heldur enga skauta. Vertu heima eins og hinir bræður þínir, þá langar ekkert til þess að elta okkur Sverri. - En ég ætla að horfa á ykkur bruna á skautunum eftir tjöminni og þú getur ekki bannað mér það, svarar hún einbeitt. - Jæja, litla frekja, þú mátt híma í kuldanum niður við tjöm, fyrir mér, hreytir Óli út úr sér. Sverrir hefur bmgðið sér fram úr baðstofunni og þessi orðaskipti systkinanna fara því með öllu framhjá honum. * * * Rennislétt svellið glitrar í tunglsljósinu. Drengirnir hafa rennt sér um stund á fleygiferð fram og aftur um tjömina og notið þess ríkulega, en nú hægir Sverrir ferðina í skyndi og skyggnist yfir á tjamarbakkann. Skyldi Sigrúnu litlu ekki vera orði kalt, að húka þama hreyfmgarlaus á bakkanum, hugsar hann og rennir sér til hennar. Jú, Sigrúnu litlu er orði kalt og hún er farin að hyggja á heimferð. En Sverrir nemur nú staðar hjá henni og spyr bróðurlega: - Langar þig ekki til að prófa skautana mína, Sigrún? - Jú, svarar hún lágt, - en ég kann ekki að renna mér á skautum. - Eg skal kenna þér það, þetta er enginn vandi, segir hann hress í bragði og losar af sér skautana. Svo krýpur hann niður og festir þá vandlega á fætur hennar. - Ósköp ertu góður við mig, Sverrir, segir Sigrún litla með aðdáun í rómi. - Eg ætla alltaf að vera það, líka þegar ég er orðinn stór. - En ég verð einhvern tíma stór líka. - Já, og það verður mest gaman! Einu sinni voru þau mamma mín og nafni minn krakkar eins og við og þau vom alltaf ósköp góð hvort við annað. Nú em þau fyrir löngu orðin stór en samt eru þau alltaf jafn góð hvort við annað. - Þau eru líka hjón, mamma segir ungu hjónin á Hamraendum, svarar Sigrún litla skilmerkilega. - En eigum við þá ekki bara að verða hjón eins og þau, þegar við erum orðin stór, spyr Sverrir með barnslegri alvöm í svip. - Jú, jú, ég vil það, því að þú ert svo góður og fallegur, er svar telpunnar. - En við skulum ekki segja neinum frá þessu, ekki einu sinni Óla, besta vini mínum og bróður þínum, Sigrún. - Nei, engum, svarar hún og leyndin er staðfest af þeim báðum. Sverrir tekur í hönd Sigrúnar litlu og hjálpar henni að rísa á fætur og síðan hefst kennslan í skautalistinni. Sigrún er undurfljót að ná valdi yfir skautunum og lærir jafn greiðlega að beita þeim á réttan hátt. Og innan stundar bmnar hún af stað sigurglöð í áttina til Óla bróður síns. Sverrir sest á tjarnarbakkann og augu hans fylgja „skautadísinni“ út á flughálan ísinn. Sigrún litla er bæði góð og falleg, hugsar hann og hann ætlar að lána henni skautana sína þegar hann fer aftur út að Fossi í skólann eftir þetta helgarleyfi hérna í Nesi. En hann ætlar líka að biðja hana að lána yngri bræðrunum þá með sér til skiptis, sem enga skauta eiga, honum fmnst ljótt að hafa suma útundan. Síðkvöldið færist yfir. Bömin þrjú halda heim til bæjar, heit og rjóð í vöngum eftir ljúfan leik og minningin um þessa kvöldstund mun fylgja þeim inn í framtíðina. * * * Veturinn er á enda mnninn. Skólastarfínu á Fossi er lokið að þessu sinni. Bömin hverfa til síns heima og vorið bíður með fangið fullt af heillandi verkefnum fyrir ungar, tápmiklar hendur. Sverrir Þórarinsson er duglegur og framsækinn drengur, og á Hamraendum er líka nóg fyrir hann að starfa. Hann hefur mikið yndi af hestum og sýnir undraverða hæfni í því að ná fram bestu kostum þeirra, svo ungur að árum. Nafni hans kann vel að meta slíka hæfileika og veitir honum óspart þá ánægju að þeysa á ijömgum góðhestum í fylgd með sér um byggðir jafnt og óbyggðir, hvenær sem tími og ástæður leyfa. Og lífið leikur við sveininn unga. * * * 140 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.