Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Page 7

Heima er bezt - 01.08.2009, Page 7
ÉgogAgnar. bolla á diskum og kaffíkönnu og mjólkurkönnu. Svo hellti hún í bollana, kveikti sér í sígarettu og bauð mér. Eg gerði eins og hún sagði, en hóstaði samt og við skemmtum okkur ágætlega minnir mig, þar til hún heyrði hljóð að utan sem urðu til þess að hún hentist upp og tók allt saman í einu hendingskasti, og henti mér út um stofugluggann. Þetta var mamma hennar að koma heim úr vinnunni og hún mátti auðvitað alls ekki sjá okkur. Mér varð ekkert meint af þessu ævintýri, en hélt heim á leið og sagði engum frá. Svo gerðist það að foreldrar mínir fluttu með börn sín og bú til Kópavogs. Þá hófst lífsbaráttan og ég byrjaði í skóla, og það þótti mér gaman. Skemmtilegast fannst mér í leikfimitímum. í Kópavogi kynntist ég í fyrsta skipti hrekkjusvínum, en hafði sem betur fer alltaf betur en þau, þar sem ég var nokkuð snögg á fæti. Við börnin lékum okkur til dæmis á ruslahaugunum sem voru niðri í ljöru bak við Valstómatsósuverksmiðjuna og mér er það mjög minnisstætt þegar ég fann þúsund króna seðil í ruslinu einn sólskinsbjartan dag og fór í einlægri gleði með leikfélögum mínum í sjoppuna í götunni okkar til þess að fagna fundinum. Okkur varð ekki kápan úr því klæðinu. Ljóta, leiðinlega afgreiðslukonan taldi mig hafa stolið seðlinum og hringdi í mömmu sem kom og stöðvaði alla verslun. Æru minni og réttlætiskennd var stórlega misboðið þennan dag, - kannski vegna þess að ég man þetta svo vel. Sem betur fer áttuðu pabbi og mamma sig á því að það var alls ekki gott að búa í Kópavogi, og fluttu með okkur systkinin aftur til baka á Ströndina árið 1971. Aðalástæða þess var sú að það var lítil atvinna á suðvesturhorninu og dýrt að lifa á loftinu einu saman, en aðstæður norður í landi fóru batnandi. Það ár byrjaði ég í 2. bekk í Höfðaskóla á Skagaströnd. Skólagangan var laus við stórafrek; mér gekk ágætlega í flestu en var ekki afgerandi í neinu. Mér fannst oftast gaman í skólanum, bæði í námi og félagslífi. Það hefur heyrst að bekkurinn minn, sem samanstóð af Agnar og Kollan. 18 hraustum ungmennum þegar flest var, hafi verið frekar ódæll, en ég held að það séu ýkjur einar! Eg held að það hafí ekki verið til prúðari bekkur. Það skín allavega af fermingarhópmyndinni hvað við vorum öll indæl. Ég fermdist á góðviðrisdeginum 30. apríl 1978. Þegar ég fermdist þótti sjálfgefið að fermast og það spáði enginn í það að fermast EKKI, eins og er í dag. Við vorum fermd af hinum eina og sanna sr. Pétri Ingjaldssyni, en það var mjög skemmtilegt að vera í fermingarfræðslu hjá honum. Þá naut sín best prúðmennskan í þessum bekk. Það eina sem ég saknaði í fermingunni minni var „stærsti“ bróðir minn, Arelíus, en hann dó tveimur mánuðum áður; svo þetta var svolítið blendin gleði, en dagurinn var ljúfur og öll tjölskyldan kom saman, ásamt frændfólki og vinum. Ég fékk margar fallegar gjafír, þar á meðal einstaklega flott skatthol sem hefur nýst mjög vel og er ennþá til. A þessum tíma voru fermingarveislur haldnar í heimahúsum, og allt heimilið var undirlagt. Öllu var hliðrað til og breytt svo best færi um gestina og veisluhöldin tækjust sem best. Það var mikið um að vera og ekki var minna þrifíð en fyrir sjálf jólin! Sófum var hent út og þeir viðraðir og barðir, og húsið var allt skúrað og þrifíð í hólf og gólf. Húsgögn voru fengin að láni hjá nágrönnunum eins og þurfti og það var ekki verið að hugsa um einhverja „fína stíla“ en allt var hreint, fínt og notalegt. Að grunnskólanámi loknu fór ég í ljölbrautarskólann á Sauðárkróki. Við vorum nokkuð mörg frá Skagaströnd sem fórum í þann skóla, og oft var glatt á hjalla hjá okkur, en ég get ekki sagt að ég hafi lært mikið þar. Svo ég tók mér námsfrí og fór að vinna í frystihúsinu á Skagaströnd og fór svo aftur í skóla og nú í fjölbrautarskólann á Akranesi á viðskiptabraut í einn vetur, og allt gekk vel. Aftur hætti ég í skóla og fór að vinna heima á Ströndinni, og ég held að ég hafi hvorki haft þolinmæði né nægilega mikinn áhuga til þess að stunda námið. Hjá mér þarf allt að ganga fljótt fyrir sig, og þetta var of langsótt. Fimm árum seinna fór ég Heima er bezt 295

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.