Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.08.2009, Qupperneq 12
Kveikt í trjárusli. fleiri langar gönguferðir síðar nreir, og mest langar mig á Strandimar fögru. Örlítið frá áhugamálunum mínum Eftir grunnskólaleikferilinn, þar sem hápunkturinn var að leika aðalhlutverkið í Rauðhettu, starfaði ég í leikklúbbi Skagastrandar í nokkur ár, sem sviðsmaður og sminka. Þar var oft glatt á hjalla á æfíngum og í leikferðum og ég var meira að segja send á sminknámskeið með æskuvinkonu minni, Önnu Sjöfn Jónasdóttur. Eg var líka í stjóm ungmennafélagsins Fram á Skagaströnd í nokkur ár. Þar var mjög gaman að starfa með góðu fólki. Núna er ég búin að láta plata mig í eina stjómarmennsku enn, sem gjaldkeri í stjóm umsjónar - og rekstrarfélags Nýtrídofuð Micksatersvegar, hér í Svíþjóð. Ég tók ekki alls fyrir löngu áhugasviðspróf. Þar fékk ég dálitla ró í beinin, því þar kom í Ijós að ég er eiginlega í miðjunni á þessu greiningaprófi, það er að segja, ég hef áhuga á öllu en engu einu. Ég get allt, - en er ekki sérfræðingur í neinu. Það var mjög gott og athyglisvert að sjá þessa niðurstöðu, vegna þess að ég hef verið haldin þeim ranghugmyndum að ég væri svo óákveðin vegna þess að ég fann mér ekkert „lífstíðarstarf eða lífstíðamám“, eða hafði ekki mestan áhuga á einhverju einu. Nú veit ég betur hvað hentar mér og hvað hentar mér ekki. Ég er meira gerandi, en minna uppfínnandi eða hugsandi; get alveg hannað og smíðað en finnst ágætt að aðrir sjái um uppfmninguna en ég svo um verkið. Mér finnst þó mjög gaman þegar ég fæ góða hugmynd, að hanna og smíða og gera upp hluti. Ég prjóna og sauma og föndra allt sem lýtur að því að gera heimilið mitt og umhverfið að fallegum, notalegum stað. Síðastliðinn vetur fræsaði ég nafnið á húsinu okkar í tré, Kolla í Portúgal 1998, með gullmolunum sínum. og það tókst afar vel og ég get vel hugsað mér að gera meira af því. Mér fínnst líka gaman að mála keramik og gler og að leika mér í „Photoshop“, ég gerði til dæmis ægifagra mynd af Húnaflóa og ætla að hengja hana upp á vegg hjá mér. Svo er ég að prófa að logsjóða núna, og búa til hluti úr járni, og það fmnst mér mjög spennandi. Ég smíðaði fyrsta „stykkið“ mitt þegar ég var 12 ára og það var feikna flókin spónaplötuhilla, sem ég sagaði og skrúfaði saman og málaði, - alein og sjálf. Ég er áhugahestakona sem hefúr ekkert vit á hestum og finnst það ekkert gera til! Mér fínnst afskaplega gott og gaman að vera með og hjá hrossum. Afi minn, Arelíus Sveinsson, hafði mikinn áhuga á hestum, en hann átti hross og keppti á þeim. Ég gæti trúað að þaðan komi áhuginn hjá mér, án þess að afi hafi haft bein áhrif á mig, enda var ég bara sjö ára þegar hann féll frá. Líklega fór þetta að ágerast með hestasögunum sem ég las, en ég las mikið sem krakki, og þá urðu hestasögur eins og Gustur, Fagri- Blakkur og fleiri góðar fyrir valinu. Þegar ég var bam vom enn fjár- og stóðréttir á Skagaströnd, og þar var maður oft að fylgjast með. Við bömin höfðum aðgang að hestum í þorpinu og vil ég til dæmis nefna hann Grána gamla hans Bjössa á Kárastöðum, en hann gekk á milli húsa með 2 - 3 börn á bakinu og var sá rólegasti hestur sem ég hef kynnst. Við krakkamir skmppum líka stundum upp i Flóa og spjölluðum við hrossin sem vom þar. 300 Heima erbezt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.