Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Síða 13

Heima er bezt - 01.08.2009, Síða 13
Það var svo vinkona min, hún Elín íris Jónasdóttir, sem sá um að mér yrði lánaður hestur til reiðar í stóðréttir í Víðidal. Ekki nóg með það, heldur galdraði hún fram kaupsamning á milli mín og eigandans og ég keypti klárinn. Hann var mér tii mikillar gleði og yndisauka, stór, fallegur og kolsvartur hestur sem Magnús Blöndal hafði tamið. Magnús Blöndal hjálpaði mér af stað með hestinn, lánaði mér hnakk, sem ég keypti svo seinna meir, sagði mér til og hughreysti mig þegar mér fannst ekki ganga nógu vel. Hestinn fékk ég að hafa á húsi með Magnúsi mági mínum og síðar kom svo einnig í þetta hesthús séra Magnús Magnússon úr Miðfirði. Kristín litla vina mín Þórðardóttir var líka í hópnum, og við skiptumst á að hirða hrossin. Stærsta upplifunin mín í sambandi við hesta var þegar ég fékk að fara með úrvalsliði hestafólks frá Skagaströnd og nágrenni í velheppnaða og meiriháttar 10 daga hestaferð. Við vorum að mig minnir, 15 manns með 90 hrossa hóp, og fórum upp úr Svínadal í Austur-Húnavatnssýslu, yfir Blöndu og niður í Galtárdal í Skagafirði. Þó að ég fengi milljónir vildi ég ekki skipta á þessari ferð og sólarlandaferð; þetta var alveg meiriháttar. Svo þurfti ég að láta klárinn í íyrra vegna meiðsla í framfæti. Það tók dálítið i hjartað en það þýddi ekki að malda í móinn. Svo keypti ég folald í fyrrahaust, og við Agnar ætlum að fá okkur fleiri þegar á líður, enda er áhugi fýrir hendi hjá öllum í fjölskyldunni á hestum og dýrum almennt. Við eigum tvo selskapssjúka ketti sem halda öllum músum í burtu, og emm komin með hænur sem eru bæði skemmtilegar og gæfar. Það er gaman að fá sín eigin egg í baksturinn og matseldina. Þetta er alveg að verða spurning um að fá sér rollur! Andlegu málin Á fyrstu árum mínum sem móðir vaknaði áhuginn á andlegum málefnum af værum blundi. Micksáter. Ég velti vöngum um þessi mál og leitaði svara þrátt fyrir aðvaranir skyldmenna, - og ég fékk svör. Ég varð fyrir vikið enn sterkari í trú minni á almættið og fann ákveðinn tilgang í tilverunni, sem síðan breyttist lítilsháttar og/eða þroskaðist. Það er engin spuming um það hvort það finnist framhaldslíf; það er aðeins spuming um það hvenær við náurn betri tækni og tengingu á milli. Mér finnst í raun ákaflega notalegt að hugsa til þess að ég er aldrei alveg ein og ég er hætt að vera myrkfælin. Siðan finnst mér myrkur bara notalegt, mjúkt og hlýtt. Eitt sinn leið yfír mig hjá lækni, vegna sársauka, og tilfinningin var mjög notaleg, því mér fannst ég sökkva í mjúkt bómullarmyrkur og allur sársauki hvarf mér. Svo var ég eins og nýsleginn túskildingur þegar ég vaknaði örfáum mínútum síðar. Þannig að næturmyrkrið er notalegt í mínurn huga, svo ég tali nú ekki um næturþögnina. Það er bara heilsubætandi að vera úti í nóttinni stöku sinnum og hlusta af athygli á þögnina, á jörðina, hafið og himininn. Það er unaðslegt og heilandi. Mér er sagt að ég sé bæði næm og dul en ég er ekki mjög Sleða- og lautarferð um vetur. Heima er bezt 301
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.