Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Page 14

Heima er bezt - 01.08.2009, Page 14
Sundsvall. upptekin af því. Mig dreymir dálítið og er orðin nokkuð seig að átta mig á draumunum mínum, en ég veit ekki hvort ég er næmari en annað fólk. Eg held að allir hafi sjötta skilningarvitið, en margir átta sig ekki á því eða hundsa það einhverra hluta vegna, í staðinn fyrir að virkja það. Ég fmn ýmislegt á mér án þess að ég geti útskýrt það á nokkurn hátt. Ég fæ á tilfinninguna bæði gott og slæmt, eða að einhver hugsun skýtur upp kollinum, sem tengist svo einhverju en ég er ekkert að tala um það nema að tilfínningin sé mjög sterk. Mér finnst þetta svo sem ekki merkilegt, og veit um marga sem líður eins. Þetta kemur sér þó stundum vel, get ég sagt. Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt, í skóla lífsins, sem er besti skólinn. Ég vil gera betur í dag en ég gerði í gær, - í öllu. Ég er samt bara mannleg vera, og tek stundum engum framförum en oftast vinn ég smáa sigra með aftur á bak keyrslu í bland! Ég verð að hafa markmið og verð helst alltaf að stefna að einhverju; þegar gömlu markmiðunum er náð, finn ég mér alltaf ný. Þannig að ég verð líklega aldrei „búin“. Ég hef alveg fullt af vanköntum en er nokkuð meðvituð um þá flesta og reyni að hafa stjórn á þeim, en ég held ekkert aftur af góðu eiginleikunum lengur og nýt þess að vera góð í öllu sem ég er góð í! Ég er búin að fínna minn tilgang í lífinu og stefna aö því að uppfylla hann. Mér er ekkert ómögulegt og ég hef þá trú að ég geti allt sem ég vil, ef ég leyfi ekki óvissunni um það hvað sé handan við homið, að trufla mig. „Hver er sinnar gæfu smiður“ er hverju orði sannara. Ekki bara utan á, heldur líka innan í. Ég óska í einlægni öllum ljóss, friðar og hamingju. Að lokum Kolbrún Björg segir mér þegar við kveðjumst að þau Agnar hafi ákveðið að vera heima í sumar með bömin, og sinna fyrirtækinu sínu sem þau stofnuðu nýlega, ásamt endurbótum og breytingum á húsi og landi. Þau ætla að fá Islendingana til sín í stað þess að fara í ferðalag um Island í sumar, en svo ætla þau í fjár— og stóðréttir á íslandi í haust. „Ég sakna Islands á hverjum einasta degi,“ segir hún. „Samt er yndislegt að búa í Svíþjóð, og við erum svona dálitlir herragarðseigendur hérna í skóginum, eins og svo margir Svíar. Mig langar bara til þess að segja við íslendinga að lokum að HEIMA ER BEST“. 302 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.