Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Page 24

Heima er bezt - 01.08.2009, Page 24
Guðjón Baldvinsson Lending Appollós 11. á tunglinu íyrir 40 árum Eitt lítið A þessari mynd hafa lehdingarstaðir Appolló- faranna verið merktir inn á. mann Um þessar mundir eru liöin 40 ár frá því að mannkynið náði þeim áfanga að stíga fœti á annan hnött en þann sem því tilheyrir. Það gerðist 20. júlí 1969, þegar geimfararnir Neil Armstrong og Edwin Aldrin urðu fyrstir manna til þess að stíga fæti á tunglið. etta var mikill atburður sem vakti athygli allra jarðarbúa, sem á annað borð höfðu tök á að fylgjast með því sem var að gerast í heiminum. Og ólíklegt er að þeir séu margir, sem þá voru komnir til vits og ára, muni ekki þennan atburð og jafnvel hvar þeir voru staddir þegar sú frétt barst sem eldur í sinu um jarðarkringluna, að þeim hefði tekist ætlunarverk sitt, að lenda á tunglinu. Það var undarleg tilfinning sem fylgdi því að horfa til tunglsins vitandi það að þar voru tveir menn að spásséra á þeirri sömu stundu. Auðvitað urðu þeir ekki séðir, svona með berum augum og sjálfsagt ekki heldur þó öflugir sjónaukar væru við höndina, en þama voru þeir nú samt. Til voru þeir sem fannst sem tunglið hefði misst nokkuð af rómantík sinni við það að mannkynið væri farið að trampa á því, og staðfesta þar með að það var ekki úr neinu draumkenndu efni, heldur grjóthörðu grjóti, kannski ekki svo ósvipuðu því sem við höfum alla jafna fyrir augum á jörðinni. Og varla Apolló 11. leggur afstað til tunglsins. þarf að nefna það náttúrlega að mýtan um það að ef til vill væri það úr „eintómum osti“ eins og segir í einhverjum bamalaga texta, var þar með fokin út í veður og vind. 312 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.