Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Side 25

Heima er bezt - 01.08.2009, Side 25
Það var annars 16. júlí 1969, rétt um þær mundir sem almennur heyskapartími var að hefjast hjá íslensku þjóðinni, að risastór Satúmus V eldflaugin hóf að spýta frá sér „eldi og eimyrju“ og þar með að lyfta af skotpalli sínum geimfarinu Apolló 11., þar sem inni í sátu geimfaramir þrír, Neil Armstrong, Michael Collins og Edwin Aldrin, nöfn sem allir könnuðust við á þessum tíma og fylgdust með af áhuga. Og minnisstæð er líka fréttin sem barst frá þjóðarbroti á Indlandi, sem kvartaði sáran yfir þessu framferði Bandaríkjamanna, að vera að skjóta á loft eldflaug, sem hefði greinilega gert gat á himinhvolfið, því í héraði þeirra hefði rignt stanslaust síðan. Voru þeir sannfærðir um að eldflaugarskotið væri skýringin á því. Gott ef þeir fóru ekki fram á skaðabætur íýrir tjónið sem hún hefði valdið. En þessi sérkennilega frétt var nokkuð gott dæmi um það hversu mikla athygli þessi atburður vakti um heim allan, frásagnir af honum bárust í alla afkima jarðar, líka þá sem kannski fylgdust ekki alla jafna með framförum og því í hvaða formi þær voru. Ferð þeirra félaga gekk eftir áætlun og að kvöldi 20. júlí lenti geimferjan Öminn með þá félaga Armstrong og Aldrin innanborðs á Hafi friðarins, en svo heitir það svæði tunglsins sem þeir lentu á. Ekki var þó lendingin algjörlega hnökralaus því tölva ferjunnar hafði ekki undan að vinna úr þeim flóknu verkefnum setn henni bárust og þurfti því Armstrong, sem var flugstjórinn í lendingarferjunni, að grípa inn í og handstýra henni að hluta til lendingar. í því fólst meðal annars að leita að betri lendingarstað en í stefndi í fyrstunni og til þess þurfti að eyða meira eldsneyti en upphaflega var áætlað. Það tókst með ágætum, en naumt var það, því ekki mun hafa verið eftir meira eldsneyti í geyinum ferjunnar en sem nam til 25 sekúnda flugs í viðbót. Svo kom að því að stigið skyldi „í land“ og fóm þeir félagar nánast beint í að undirbúa það. Gert hafði verið ráð fyrir því að þeir legðust til svefns í um 5 klukkutíma áður, svo þeir væru úthvíldir áður en að fyrstu tunglgöngunni kæmi. En því var breytt því þeir félagar töldu ólíklegt að þeir næðu nokkrum svefni sem nærni í þeim aðdraganda, og skal engan undra þá niðurstöðu þeirra, margur hefur sofið lítið þó af minna tilefni væri en því sem þeir nú stóðu frammi fyrir. Og á mánudeginum 20. júlí opnaði svo Armstrong lúgu ferjunnar og hóf að reyna að brölta út um gatið og koma sér niður níu þrepa stigann sem á milli hans og yfirborðs tunglsins var. Vegna tækjabúnaðar á baki og bringu hans gat hann ekki séð niður á fætur sér og varð því eiginlega að þreifa sig áfram niður á við. Og upp úr miðnætti þessa dags, steig hann svo vinstri fæti sínum á yfirborð tunglsins, fýrstur manna til að gera svo, og mælti þá setningu sem fræg varð á sömu stundu: „Þetta er lítið skref fyrir mann, en risastökk fyrir mannkyn“. Atburðinum var sjónvarpað beint til um 600 milljóna manna á jörðu niðri. Seinna Heima er bezt 313

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.