Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Page 37

Heima er bezt - 01.08.2009, Page 37
er ég svo vel að mér í landafrœði, að ég veit að Reykjavík er ekki í Arnessýslu. Efmig minnir rétt, var álitið ífornöld - að sá væri „ níðingur ", er réðist að baki manns. Þeim dóm forfeðra minna fylgi ég og þess vegna skora ég á níðing þenna, sem hefur ráðist á mig í Isafold 1896, einmitt þegar hann vissi að ég var í New York, þar sem ég gœti ekki séð blaðið og vœri þess vegna ómögulegt að bera hönd fyrir höfuð mér, að gefa sig fram - og ekki fela sig lengur í dtdarbúningi. Eða hylur hann nafn sitt af sömu ástœðu og þessi „Missionair", sem „heiðraði land okkar “ með komu sinni og erindagjörð í Metropolitan Museum í New York? Vinaminni 15. nóv. 1909 Sigríður E. Magnússon. “ Svo mörg voru þau orð Sigríðar Einarsdóttur frá Brekkubæ, eða Sigríðar E. Magnússon, eins og hún kallar sig þar að heldri kvenna hætti þess tíma og notar eftimafn eiginmannsins á því herrans ári 1909. Eins og ífam kemur í grein Sigríðar, er hún svar við grein, sem birt var 14 ámm áður en ísafold birti hana. Að vísu útskýrir Sigríður ástæðu þess hversu seint svar hennar er á ferðinni. Fljótt á litið verður því þó tæpast haldið fram, að þessi mikli kvenskörungur hafí verið alveg laus við langræknina. En þar í móti verður því ekki neitað, að tilefni ísafoldargreinar hennar árið 1910 er ærið. Hér á eftir kemur grein sú í sama blaði, sem birtist árið 1896 og varð kveikjan að síðbornu svari Sigríðar. Fjandskapurinn í hennar garð leynir sér ekki og sérstaklega ámælisvert hlýtur það að teljast, að greinin birtist undir dulnefni. Verður hvorki sagt, að það auki hróður höfundar bréfsins né ritstjóra blaðsins. Slíkar greinar em tæpast skrifaðar, nema eitthvað sé í húfi. Þá vaknar sú spurning, hvort höfundur greinarinnar hafi óttast að kvennaskóli Sigríðar Einarsdóttur gæti á einhvern hátt ógnað þeim kvennaskóla, sem fýrir var í bænum og þau hjónin Þóra og Páll Melsteð stofnuðu árið 1874 og Þóra stýrði. Tæpast verður það þó talið sennilegt, því sá skóli var á þessum tíma yfírstéttarskóli, þar sem alþýðustúlkum var sannanlega ekki ætlað að ganga um sali. Hugmynd Sigríðar Einarsdóttur var hins vegar sú, að stofna alþýðuskóla fyrir stúlkur. Það skyldi þó aldrei vera, að sá sem ritaði greinina í ísafold árið 1896, hafi verið að fá útrás fyrir smásálarlegan yfirstéttarhroka? En hér kemur sem sagt greinin, sem birtist í ísafold árið 1896 undir fyrirsögninni „Kvennaskólinn í Vinaminni" og dulnefninu „Kvennmenntunarvinur“: „ Getið þjer, herra ritstjóri, frætt mig og aðra um það, hvað orðið hefur af samskotum þeim, sem sagt var frá í útlendum blöðum að safnað hafi verið á Englandi, í Svíþjóð og víðar, af frú Sigríði Magnússon í Cambridge, til eflingar menntun og menning kvennfólks hjer á landi. Herra Eiríkur Magnússon hefur ritað margt og mikið um bankamál, botnvörpur ogfleira; en hann hefur aldrei minnzt á þetta málefni. Hjer í Reykjavík er háreist hús, sem fyrst var sagt að byggt vœri fyrir þessi útlendu samskot, og ætti að hafa það fyrir kvennaskóla, en síðan hefur ekkert heyrzt um þetta. Hver á húsið? Og hver tekur leiguna eptirþað? Eða hvar eru samskotin niður komin? Sje það satt, að nefnt hús hafi verið reistfyrir samskotafjeð handa hjerlendu kvennþjóðinni, þá á hún húsið, en enginn einstakur maður, og œtti hún þá að hirða húsið og tekjurnar afþví. Er það nú forstöðunefnd Kvennfjelagsins, eðayfirvöld landsins, sem œttu að grennslast eptirþví, hve samskotafieð var mikið, og hvort húsið er almennings eða einstaks manns eign? Virðingarfyllst, Kvennmenntunarvinur. Undir lesandabréfinu kemur svo eftirfarandi viðbót ritstjóra: „Ritstjóri ísafoldar mun ekki verafœrari að leysa úr þessum spurningum heldur en spyrjandi sjálfur. Það hafa, svo kunnugt sje, engar skýrslur birtar verið nokkurn tíma hér á landi um þessi samskot eða hagnýting þeirra. Vjer vitum það eitt, að skóli var haldinn, kvennaskóli, í húsinu 1 veturfyrir mörgum ántm, en síðan ekki söguna meir. Líklega munu yfirvöld vor álíta málið sjer óviðkomandi. En mjög virðist vel til fallið, að Kvennfielagið íslenzka skipti sér afþví, eins ogfyrirspyrjandi drepur á, og reyni t. d. að fá úr því leyst í tœka tíð, hvort húsið er heldur almenningseign eða einstakra manna, m. m. (með meiru.) Ritstjóri. “ Tekið skal fram, að ritstjóri Isafoldar árið 1896 var Björn Jónsson, en þegar grein Sigríðar birtist árið 1910 hafði sonur hans, Ólafiar Bjömsson tekið við ritstjóminni, enda var Bjöm þá ráðherra Islands og hafði því öðmm hnöppum að hneppa. Ævikvöld Sigríðar frá Brekkubæ Ævilok Sigríðar Einarsdóttur, stúlkunnar úr kotinu Brekkubæ í Grjótaþorpi, urðu með nokkuð óvanalegum hætti, eins og nú skal rakið, þó segja megi, að þau sómi þeirri heimskonu, sem hún var. Þegar halla tók á ævikvöldið dvaldi hún nokkur sumur á heilsuhælinu í Skodsborg í Danmörku, eða Skodsborg Sanatorium, eins og það kallast á máli þarlendra. Þetta var á ámnum 1908 til 1911. Sumarið 1913 lést bóndi hennar, Eiríkur Magnússon og flutti Sigríður þá í minni íbúð. Þó hugðist hún hafa vetursetu á heilsuhælinu í Skodsborg. En sumarið eftir, þegar hún ætlaði að snúa heim til Cambridge, var fyrri heimsstyrjöldin skollin á, svo ekki gat orðið að heimferð. Heima er bezt 325

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.