Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Page 44

Heima er bezt - 01.08.2009, Page 44
að byggja kapalsílóið. Síðan var kapallinn lestaður og tók það 2 sólarhringa að mig minnir. Meðan á því stóð var okkur boðið að borða um borð í Heimdal. Þeim munaði ekki um að taka okkur 6 í mat hjá sér kokkunum þar. Og þar var ekkert „slor“ á borðum. Ég man nú ekki lengur hvað áhöfnin á „Heimdal“ taldi marga menn en svo vom hleðslumennimir og allslags stjórar frá Alcatel um borð. Þeir sem sjá um hleðsluna vom 2 á hverri vakt, sem stóð í 8 tíma. Þ. e. a. s„ 6 menn og svo 5 eða 6 verkamenn af staðnum. Þessir 6 menn ferðast um heiminn og em bara í því að lesta kapla í skip bæði lagningaskipin og flutningaskip sem flytja þá út um allan heim. Ég hafði áður lent í að flytja sæstreng á öðm skipi félagsins frá Napólí til Seattle um Panamaskurð, 9400 sjómílna siglingu, sem tók 45 daga. En það er allt önnur saga. Eftir lestunina á kaplinum í Willemstad tók við algert letilíf. Maður endumýjaði kynni sín af rústhömrum og málningarpenslum. Þama kynnumst við skipstjóra, hálfum Dana og hálfum Hollendingi, Pieter Ottosen að naftii. Hann átti og stjómaði Vlieland, 70 tonna, 22,5 metra löngum og 6,8 metra breiðum dráttarbáti. Hann hafði aðalbækistöð í Willemstad en hann var búinn að sullast margar ferðir yfír Atlantshafið, með allan tjandann í slefí. Ef einhver sem les þetta hefur fylgst með í danska blaðinu „Söfart“, sem birtir flest það sem gerist í dönskum siglingum, ætti sá hinn sami að kannast við nafnið, en Ottosen átti í löngu stríði við dönsk skattayfirvöld út af DIS reglugerðinni. Og hafði fúllan sigur að lokum. Ottosen var með 2 Dani með sér en réði 2-3 innfædda til hverrar ferðar fyrir sig. Hann virtist vaða í peningum og tók okkur öll með út að borða, hvað eftir annað. Alltaf á fyrsta flokks staði enda mikill matmaður eins og sönnum Dana sæmir. Og umfangið eflir því. Hann átti svo vin þama á Curacao sem rak köfúnarskóla og fengu strákamir auk Gunnars, fría kennslu hjá honum fyrir orð Ottosen. En ég lét mig hafa það að dunda mér við að þykjast Boquerón Camorra O ban balvador ™snTTr5 ■ ö O Coporito js Piedritas Paso Nuevo « • ° Pena Negra Macareo Santo Nino . Lós Barrancos de Ouaritic Boca de Macareo Guarguapo Barrancas Juncalito Uverito Mereicito ,, . , Macuare H3to Tronconales Boca Araguáito Los Remolinos Rfo Oitnaco ' La Imperial Los Castillos Piacoa O Sant, Catal La Esperanza Dinamita 2001 Mcrosoft Corp and/orits suppliers. Kort afhluta fljótsins. Fljótið er líklega um 15-1700 mílur á lengd. Höfundur staddur við kafjibarinn. Myndin er tekin í brúnni á D.Red. passa skipið og skrapa svolítið og mála. Auk þess að skreppa svo í land þegar færi gafst. Þetta með að passa skipið var nú reyndar argasta lygi því við lágum inn á lokuðu svæði hjá skipsmíðastöðinni. Annars vom þessir 2 strákar sem við höfðum á dekkinu mjög ágætir. Hvorugur drakk nokkuð að ráði og annar var búinn að kynnast jafnöldm sinni (19-20 ára) í Bandaríkjunum á Intemetinu og sat flest öll kvöld (þegar hann var ekki að kafa) á intemetkaffi í bænum og spjallaði við hana. Ottosen bauð mér oft sér með sér til að líta á „lífíð“. Ekki hafði ég áhuga á næturlífinu en það var víst með fjörugra móti þama og hefúr líklega margt „skemmtilegt“ upp á að bjóða, en það státar víst t. d. af stærsta vændishúsi í heimi. En eins og sönnum íslenskum sjómanni 332 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.