Heima er bezt - 01.08.2009, Síða 44
að byggja kapalsílóið. Síðan var kapallinn
lestaður og tók það 2 sólarhringa að mig
minnir.
Meðan á því stóð var okkur boðið að
borða um borð í Heimdal. Þeim munaði
ekki um að taka okkur 6 í mat hjá sér
kokkunum þar. Og þar var ekkert „slor“
á borðum. Ég man nú ekki lengur hvað
áhöfnin á „Heimdal“ taldi marga menn
en svo vom hleðslumennimir og allslags
stjórar frá Alcatel um borð. Þeir sem sjá
um hleðsluna vom 2 á hverri vakt, sem
stóð í 8 tíma. Þ. e. a. s„ 6 menn og svo
5 eða 6 verkamenn af staðnum.
Þessir 6 menn ferðast um heiminn og
em bara í því að lesta kapla í skip bæði
lagningaskipin og flutningaskip sem flytja
þá út um allan heim.
Ég hafði áður lent í að flytja sæstreng á
öðm skipi félagsins frá Napólí til Seattle
um Panamaskurð, 9400 sjómílna siglingu,
sem tók 45 daga.
En það er allt önnur saga.
Eftir lestunina á kaplinum í
Willemstad tók við algert letilíf. Maður
endumýjaði kynni sín af rústhömrum og
málningarpenslum.
Þama kynnumst við skipstjóra, hálfum
Dana og hálfum Hollendingi, Pieter
Ottosen að naftii. Hann átti og stjómaði
Vlieland, 70 tonna, 22,5 metra löngum
og 6,8 metra breiðum dráttarbáti.
Hann hafði aðalbækistöð í Willemstad
en hann var búinn að sullast margar ferðir
yfír Atlantshafið, með allan tjandann í
slefí.
Ef einhver sem les þetta hefur fylgst
með í danska blaðinu „Söfart“, sem birtir
flest það sem gerist í dönskum siglingum,
ætti sá hinn sami að kannast við nafnið,
en Ottosen átti í löngu stríði við dönsk
skattayfirvöld út af DIS reglugerðinni.
Og hafði fúllan sigur að lokum.
Ottosen var með 2 Dani með sér en
réði 2-3 innfædda til hverrar ferðar fyrir
sig. Hann virtist vaða í peningum og tók
okkur öll með út að borða, hvað eftir
annað. Alltaf á fyrsta flokks staði enda
mikill matmaður eins og sönnum Dana
sæmir.
Og umfangið eflir því. Hann átti svo vin
þama á Curacao sem rak köfúnarskóla og
fengu strákamir auk Gunnars, fría kennslu
hjá honum fyrir orð Ottosen. En ég lét
mig hafa það að dunda mér við að þykjast
Boquerón Camorra O ban balvador ™snTTr5 ■ ö O Coporito
js Piedritas Paso Nuevo « • ° Pena Negra Macareo Santo Nino . Lós Barrancos de Ouaritic Boca de Macareo
Guarguapo Barrancas Juncalito
Uverito Mereicito ,, . , Macuare H3to Tronconales Boca Araguáito Los Remolinos
Rfo Oitnaco
' La Imperial Los Castillos Piacoa O Sant, Catal La Esperanza
Dinamita
2001 Mcrosoft Corp and/orits suppliers.
Kort afhluta fljótsins. Fljótið er líklega um 15-1700 mílur á lengd.
Höfundur staddur við kafjibarinn. Myndin er tekin í brúnni á D.Red.
passa skipið og skrapa svolítið og mála.
Auk þess að skreppa svo í land þegar
færi gafst.
Þetta með að passa skipið var nú reyndar
argasta lygi því við lágum inn á lokuðu
svæði hjá skipsmíðastöðinni.
Annars vom þessir 2 strákar sem við
höfðum á dekkinu mjög ágætir. Hvorugur
drakk nokkuð að ráði og annar var búinn
að kynnast jafnöldm sinni (19-20 ára) í
Bandaríkjunum á Intemetinu og sat flest
öll kvöld (þegar hann var ekki að kafa)
á intemetkaffi í bænum og spjallaði við
hana.
Ottosen bauð mér oft sér með sér til
að líta á „lífíð“. Ekki hafði ég áhuga á
næturlífinu en það var víst með fjörugra
móti þama og hefúr líklega margt
„skemmtilegt“ upp á að bjóða, en það státar
víst t. d. af stærsta vændishúsi í heimi.
En eins og sönnum íslenskum sjómanni
332 Heima er bezt