Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Síða 62

Heima er bezt - 01.08.2009, Síða 62
fjarlægðust og fréttin flaug um bæinn eins og eldur í sinu. Margir litlir vélbátar lágu í höfninni en hún var þakin rekís. Það tókst þó brátt að koma vélinni í gang í einum bátnum og stjaka honum út úr höfninni. Var nú sett á fulla ferð á eftir drengjunum á jakanum og tókst fljótlega að draga þá uppi og bjarga þeim upp í bátinn. Mátti það ekki seinna vera, því að jakinn var ekki stór, og kjarkur drengjanna brostinn. Lítið var rætt um jakahlaup í Stykkishólmi, það sem eftir var af þeim vetri. Þetta var varúðarmerki, sem ekki varð misskilið. Næsta saga heitir: Vélbáturinn, sem sökk Það var síðla vetrar í ágætu veðri, að lítill vélbátur með þilfari fór af stað frá Stykkishólmi á leið upp á Skógarströnd. Veður var bjart og stillt. Eg man það vel að ég horfði á eftir bátnum, er hann kom inn fyrir Baulutangann og hugsaði sem svo, að gaman væri að vera á sjó í slíkri veðurblíðu. A bátnum voru tveir menn, og af því að ekki var hægt að lenda vélbátnum á viðkomustöðunum, þá höfðu þeir í eftirdragi litla kænu. Nokkurt ísrek hafði verið undanfarna daga, og voru smájakar hér og þar á reki, en þá er sigling ætíð hættuleg. Jakamir eru líka misþungir og sjást misjafnlega vel á sjónum. Jakar úr sjávarís em léttari og sjást betur en blátærir jakar, sem flotið hafa til sjávar úr bergvatnsám. Eg leit af litla vélbátnum um stund. Sólin gyllti sundin og ekki gáraði sjóinn. Allt í einu hvarf báturinn. Hann stakk sér í hafíð. Glerharður jakaklumpur hafði rekist á kinnunginn á bátnum og setti stórt gat á byrðinginn. Höggið var ekki meira en það, að mennimir urðu þess aðeins varir, en samstundis seig báturinn að framan. Mennimir vom handfljótir að draga að sér kænuna og snara sér út í hana, og mátti þar engu muna, því að báturinn stakkst í djúpið. Báðir vom mennimir ósyndir, og hefðu þeir vafalaust báðir dmkknað, ef þeir hefðu ekki verið með litla bátinn, — og þó var örskammt upp í næstu eyju. Þriðja sagan heitir: Uxinn sóttur í eyjar Olafseyjar heita eyjar tvær, sem liggja skammt ffá landi undan Skarði á Skarðsströnd. Er svo að sjá sem þær hafi einhvem tíma verið byggðar, og heitir önnur eyjan Hóley, en hin Bæjarey. A Söguöldinni lágu eyjar þessar undir Reykhóla, en síðar hafa höfúðbólin Skarð og Reykhólar skipti á eyjum. Akureyjar, sem áður lágu undir Skarð, urðu eign Reykhóla, en Skarð eignaðist Olafseyjar. I Grettissögu er þessi saga sögð: A Reykhólum bjó á Söguöldinni mikill höfðingi, er Þorgils hét Arason. Grettir var sekur orðinn, en dvaldi um vetrartíma á Reykhólum í skjóli þessa héraðshöfðingja, ásamt þeim fóstbræðmm Þorgeiri og Þormóði. Vom þeir allir niiklir garpar, eins og sögur greina ffá. Þorgils bóndi átti uxa góðan úti í Olafseyjum og vildi hann nálgast uxann fyrir jólin. Hann bað þá félagana þrjá, að fara og sækja gripinn. Frá Reykhólum er alllangt út í Ólafseyjar, eða um hálf önnur vika sjávar. Þeir sigldu út flóann og höfðu Frá Skarði. byr góðan. Þegar út í eyjamar kom spurði Grettir, hvort þeir fóstbræður vildu heldur leggja út uxann eða halda skipinu. Þeir báðu Gretti halda skipinu. Hann stóð við mitt skipið á það borð, er ffá landi horfði, tók honum sjórinn undir herðablöðin, og hélt hann skipinu, svo að hvergi sveif. Þeir fóstbræður lögðu út uxann og tók Þorgeir undir uxann að aftan, en Þormóður að ffaman, og hófú hann svo út í skipið. Þeir settust svo allir undir árar og reri Þormóður í hálsi, en Þorgeir í fyrirrúmi, en Grettir í skut og héldu inn á flóann. Er þeir komu inn fyrir Hafraklett, styrmdi að þeim (þ. e. hvessti). Þá mælti Þorgeir: „Frýr nú skuturinn skriðar?“ Grettir svarar: „Eigi mun skuturinn eftir liggja, ef allvel er róið í fyrirrúminu.“ Þorgeir féll þá svo fast á áramar, að af gengu báðir háimir. Þá mælti hann: „Legg þú til Grettir, á meðan ég bæti að hánum.“ Grettir dró þá fast á áramar, meðan Þorgeir bætti að hánum. Höfðu þá svo lúist árarnar, að Grettir hristi þær í sundur á borðinu. Þormóður kvað betra að róa minna og brjóta ekki. Grettir þreif þá erði tvö (þ. e. tré eða planka), er lágu í skipinu, rak bomr stórar í borðstokkinn og reri svo sterklega, að brakaði í hveiju tré. Er þeir náðu landi á Reykhólum, spyr Grettir, hvort þeir vildu heldur fara heim með uxann eða setja bátinn. Þeir kusu heldur að setja upp skipið, og settu þeir það upp með öllum sjónum, sem í því var, en það var mjög klökugt og sýlað. Grettir leiddi uxann og var hann mjög feitur og stirður eftir böndin. Þar kom að uxann þraut gönguna. Þeir fóstbræður gengu beint heim, því að þeir vildu ekki rétta Gretti hjálparhönd. Þorgils spyr um Gretti. Þeir fóstbræður sögðu hvar þeir höfðu við hann skilið. Þorgils sendi þá húskarla sína á móti honum. Er þeir koma ofan undir Hellishóla, sáu þeir hvar maður fór á móti þeim og hafði naut á baki. Var þar kominn Grettir og bar þá uxann. Undmðust allir hversu miklu hann gat orkað. Lék Þorgeiri næsta öfúnd á um afl Grettis. Þjóðskáldið Matthías Jochumsson hefur ort ljóð út af Grettissögu, sem heita Grettisljóð. Þar segir svo um þennan atburð: „Þá líta þeir í drífúnni langt fyrir neðan völl, á leiti nokkm 350 Heima er bezt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.