Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Page 65

Heima er bezt - 01.08.2009, Page 65
Fátœkt sem vill skarta Fátækt hefur lagt þig lágt í lífsins flestum greinum, fyrst þú aldrei missa mátt miskunn handa neinum. Óþarft angur Þó í bili sortni sól síst er þörf að kvarta, meðan indælt áttu skjól upp við móðurhjarta. Ylur Þegar ísinn þreytir kinn, þig ég kýs að finna. Alltaflýsir andiþinn öðruvísi en hinna. Tajl Riddararnir þó komi á kreik og keppnin verði snúin, halda best í hörðum leik hrókurinn ogfrúin. Glópagull Hljóta að þeytast margs á mis menn sem leita auðsins, og í sveita andlitis aldrei neyta brauðsins. Heimild: Eyjan svarta, Skákprent 1994. Eftir að hafa hlustað á atómljóð í útvarpinu: Hvað er það sem vantar í þessa ungu andans menn, fyrst áhuginn er nógur til að skapa? Getur það nú verið, þeir viti það ekki enn, að vængjalaus fugl er dæmdur til að hrapa. Hugleiðing um Gísla Olafsson er hann fékk hjartaáfall: / anda sé ég endurfund, þá æviferð er liðin. Pabbi sefur síðsta blund sæll við lækjarniðinn. Líf mitt er sem lygasaga ég lijði eitt sinn gamla daga. Saklaust barn með hvítan kraga, kyssti mömmu góða nótt. En pabbi hafði sagt mér sögur, sungið Ijóð og kennt mér bögur. Hann sagði að veröld vœri fögur, en vondir menn er gerðu Ijótt. Þá var hoppað grænar grundir, gleðiríkar allar stundir, en þessir Ijúfu leikjafundir liðu bara alltof fljótt. Margir berast mikið á og verja til þess miklu fé, eins og þegar einbýlishús eru byggð upp á nokkur hundruð fermetra gólfflöt. Með titlum og ótal táknum er tign vor og borgarastétt. I bústnum húsabáknum hún býr um sig - glöð og mett. Megintilgangur samlífs karls og konu er að efna í nýja kynslóð. Því lýsi ég á þessa leið: Náð sér hefur hún í mann og hann I konu eina, og sem honum ala kann úrvals fljóð og sveina. En til að hemja fólsijölgun eiga Kínverjar sín ráð: Fólki svo ei fjölgi meir, fylkja kappar liði, stúlkubörnum stúta þeir strax I móðurkviði. Að vera Ijós í veröld hér, víst er talinn styrkur, því hverjum geisla ætlað er að yfirbuga myrkur. Höfundur: Kr. Hreinsson, Kópavogi. Og það er hollt fyrir borgarbúa að bregða sér út í sveit. Erindið skýrir sig sjálft: Það er bara besta val, úr borginni að þjóta, hlusta á fugla fagurt hjal, en forðast þá að skjóta. Margir leika það á ýmsan hátt að vera fjarverandi, til að losna við að svara spurningum og vera ábyrgir: Hann keypti sér frið, hann var ekki við, og víst er það sterkur leikur, en nú fœr hann frið og náðuga bið, því nú er hann sagður veikur. Dægurljóð Eg held ég byrji á því að birta hér fallegt ljóð um land og þjóð. Nú á dögum er ekki títt að ort sé um þessi efni, allt er tekið að snúast um kalda vitsmuni, en tilfinningar látnar Heima er bezt 353

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.