Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Page 80

Heima er bezt - 01.08.2009, Page 80
Málverk eftir William Frederic Mitchell, afHMS Challenger. Frægir landkönnunarleiðangrar á árunum fyrir og eftir 1500, svo sem Ameríkuferð Kólumbusar, sigling Vascos da Gama suður Jyrir Afríku og heimssigling Magellans, bœttu ekki síður nýjum höfum en löndum á heimskort Evrópumanna, án þess að þeir vœru skipulagðir sem hafrannsóknaferðir. James Cook, kapteinn í Konunglega breska flotanum, kannaði og kortlagði lönd og höf á suðurhveli jarðar á síðari hluta 18. aldar í þremur frœgum sjóferðum á herskipinu HMS Endeavour. En allir þessir frœkilegu leiðangrar bœttu fáu við þekkingu okkar á þeim liðlega tveimur þriðju hlutum jarðar sem leynast undir yfirborði sjávar. Challengerleiðangurinn Árið 1872 gerði Konunglega vísindafélagið í Lundúnum út rannsóknaleiðangur á sjó, sem sumir telja marka upphaf vísindalegra hafrannsókna. Herskipi í breska flotanum, HMS Challenger, var breytt í hafrannsóknaskip með aðstöðu til söfnunar og úrvinnslu gagna í haffræði og haflíffræði. Undir fræðilegri stjóm Skotans Charles Wywille Thomsons, prófessors við Edinborgarháskóla, lagði skipið úr höfn í Portsmouth í desember Ömólfur Thorlacius i«é 368 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.