Heima er bezt - 01.08.2009, Qupperneq 86
Allir, sem sáu teikningar af húsinu, málarar, leikarar,
listamenn og leikhúsmenn ytra, luku eindregnu lofsorði á
teikninguna. „Það er stórágætt,“ sagði Adam Poulsen. „Þegar
maður horfír á þessa framhlið," sagði Carl listmálari Lund,
sem þekkir alla byggingarstíla, „þá fínnur maður til þess,
að nú er maður á Islandi.“ Sonur Ivars Smidt leikhússtjóra
sagði með innilegustu hrifningu um teikningamar: „Ég hef
séð fjölda af leikhúsum, og þar á meðal söngleikhúsin í Berlín
og Vínarborg, sem ákaflega mikið er borið í, en teikningamar
yðar eru svo einfaldar og göfugar, að þær vekja hjá mér enn
þá einlægari aðdáun.“
Leiksviðstuminn er hafður svona hár til þess að öll tjöld
verði dregin beint upp í loftið, án þess að neðri brúnin sjáist
ffá áhorfendunum. - Allar vindur til að velja þau upp á
svigna ævinlega niður í miðjunni, og verða óbrúkandi eftir
nokkum tíma.
Gólfteikningamar
Ahorfendaplássið heflir liðug 500 sæti, með sætunum á
pallinum, sem ekki sést á myndinni. Á gólfínu em 416, og
tvær hliðarstúkur, sem hver fyrir sig tekur 3-4 menn í sæti.
Önnur er ríkisstúkan, fyrir ráðherra og konung. Hitt er kallað
fyrst um sinn gestastúkan, án þess þó að sendimenn sérstakra
ríkja hafí nokkum stöðugan aðgang að henni. Uppi á pallinum
verða alls 95 sæti. Ekki er ætlað fyrir því að nokkur maður
standi í leikhúsinu. Utan með áhorfendasætunum báðumegin
em stórar fatageymslur, og uppi yfír forstofunni er salur fyrir
áhorfendur milli þátta, og þar verða einhverjar veitingar.
Fyrir handsnyrtingu og þess háttar verður séð uppi og niðri,
bæði fyrir konur og karla.
Rennisviðið
Þegar Adam Poulsen vom sýndar teikningamar, var ekki
búið að draga hringinn, sem afmarkar rennisviðið - hreyfisvið
kallar Skúli Skúlason það í „Fálkanum“. - Þá lauk hann miklu
lofsorði á teikningamar, og hve vel öllu væri fyrirkomið, en
bætir svo við: „En þama ætti að vera rennisvið". Jú, það átti
að koma frá upphafi.
Rennisviðið er að ryðja sér til rúms erlendis. Nú er það
„Det nye teater“ í Höfn, sem hefur einasta rennisviðið á
Norðurlöndum. I sumar verður rennisvið sett upp á konunglega
leikhúsinu í Höfn. Frá dramatíska leikhúsinu í Stokkhólmi var
sendur út maður til að líta á leiksvið annarsstaðar, og hann
kom í þeirri ferð upp í „Det nye teater“, og þótti tiltækilegast
að láta byggja rennisvið á dramatíska leikhúsinu í Stokkhólmi.
Rennisviðið gerir það svo auðvelt að skipta um leiksvið,
og sparar mjög vinnukraft við leiksviðið. Rennisviðið er
lárétt, en sætin fyrir áhorfenduma verða að hækka meira
en annars. Lárétt leiksvið er mjög til þæginda. Það er og
betra að ganga á því og dansa og öll stofugögn fara betur
með sig á láréttu gólfí en höllu. Á „Det nye teater“ átti að
sýna leikrit með 12 leiksviðsbreytingum. Þrisvar mátti nota
sömu svið og áður höfðu komið fyrir. Áður en byrjað var,
var búið að setja upp þessi 9 leiksviðstjöld, og þegar leikið
var þurfti ekkert annað en að snúa leiksviðinu nógu oft, og
það tekur viðlíka margar sekúndur og það tekur mínútur á
vanalegum leiksviðum, að skipta um leiksvið. Leiksviðinu
er snúið með 2-3 hesta mótor.
Húsið á að standa norðan við Hverfisgötu, næst fyrir austan
Landsbókasafnshúsið. Frá syðri brún Hverfisgötunnar sést
Esjan báðu megin, og það sýnist þaðan vera gengið út úr
Esjunni.
Haganlegt fyrirkomulag og hæst móðins
Ut úr austurhliðinni er krossálma, og þar er svo fyrir komið,
að tjöldin ganga út og inn þvert út frá miðju leiksviðinu.
Efst í álmunni er málarasalurinn. Þaðan geta baktjöld og
hliðartjöld farið niður um rauf á gólfinu, sem má opna og
loka, og niður í snikkaravinnustofuna, en úr henni geta þau
enn gengið um rauf á gólfínu og niður í tjaldageymsluna. Út
frá leiksviðinu er jafúhátt því geymsla er þar fyrir húsgögn
og þess háttar. Yfír henni er æfingasalur fyrir leikenduma.
Fyrir afitan leiksviðið er leikendasalur, skrifstofur og fjöldi
af búningaherbergjum og önnur þægindi fyrir þá, sem leika.
Við höfum ráðið Jens Hansen til þess að byggja upp rennisviðið
frá neðra kjallaragólfi og upp fyrir snúruloft Hann hefúr
verið leiksviðsmeistari á „Det nye teater“, og byggt þar upp
rennisviðið. Hann hefúr látið gleði sína í ljósi yfír því í einu
Hafnarblaðinu, að hann nú, þegar hann er orðinn 69 ára, skuli
vera tekinn fram yfír þýska prófessora til að fara hingað til að
setja upp leikhúsið héma, sem hann kallar „Det mest modeme
Teater i Verden“. Þessi ummæli Jens Hansens munu vera í
þýðingu „leikhúsið, sem er hæst móðins í heimi“.
Indr. Einarsson. - Heimild: Oðinn - 1921.
374 Heima er bezt