Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Qupperneq 93

Heima er bezt - 01.08.2009, Qupperneq 93
sagði Rósa einu sinni um morgun og bætti svo við: „Ég sá hana koma úr bílnum hjá honum. Hann lét hana út á stoppistöðinni en kom ekki inn á planið.“ „Mér líst verr á Pálma en strákinn sem kemur með pelsklæddu mömmunni og eru þó báðir slæmir í mínum augum“, sagði Ingi. Asdís var að afgreiða hjón þegar hún fann að það var horft á hana. Þegar hún leit upp sá hún að móðir Stefáns var hinum megin við borðið og hvíldi augun á henni. Fyrir aftan hana stóð Stefán og brosti til hennar. Kuldalegt augnaráð konunnar gerði hana óörugga. „Eru þeir ekki við, Ingi eða Lárus?“ spurði hún og bætti við: „Ég vil að þeir afgreiði mig, ég er að kaupa f'yrir veislu.“ Asdís kallaði á Inga sem kom eins og skot. Hún sneri sér að næsta viðskiptavini. Hún sá að Stefán fylgdi henni eftir með augunum og sætti færi að ná af henni tali. „Verðurðu í skólanum í kvöld?“ hvíslaði hann þegar móðir hans hafði vikið frá kjötborðinu. Hún sagði sem var að það væri ffí. „Ég bíð eftir þér úti á bílastæðinu við aðaldymar, ef ég má?“ Aður en hún gat svarað var hann genginn til móður sinnar sem kallað hafði á hann. Asdís átti erfitt með að einbeita sér það sem eftir var dagsins. Hún var hrædd um að einhver hefði tekið eftir því að þau voru að tala saman, en það virtist hafa farið framhjá öllum, enginn sagði neitt. Henni þótti miður að vera ekki í betri fötum í vinnunni en gömlum gallabuxum og hvitri peysu. Ef hún hefði átt von á honum hefði hún farið í betri föt um morguninn. Eiginlega hafði hún verið farin að halda að hann kæmi ekki aftur og hefði sagt að hann langaði til þess að kynnast henni til þess eins að sjá hvemig hún tæki því. Hvað gat þessi laglegi og fíni maður í Háskólanum viljað henni, venjulegri sveitastelpu sem var innanbúðar í stónnarkaði og aðeins í kvöldskóla? Þau áttu víst litla samleið. Hún vissi þó vel að hún var mjög lagleg, enginn þurfti að segja henni það. Hún sá það í speglinum: Ljóst sítt hár, dökkblá augu, lítið og vellagað nef, ljós og slétt húðin, varimar í þykkara lagi. Hún var líka fremur hávaxin og grönn. Mikið vildi hún núna að hún hefði drifíð sig í nokkra ljósatíma til þess að viðhalda brúnum lit sumarsins á húðinni. Hún hugaði óvenjulega vel að útliti sínu áður en hún fór út. „Vertu samferða“, sagði Rósa. „Ég þarf annað“, sagði Asdís og vonaði að Rósa kæmi séraf „Þú ert vonandi ekki að fara að hitta strákinn sem var á eftir þér en er farinn að glenna sig ffaman í Petru?“ sagði Rósa. Ásdís sagði að hún væri ekki að hitta Pálma og vonaði að hann væri hættur að elta sig. Með það fór Rósa og bað Ásdísi að líta inn um helgina og helst að koma með sér eitthvað út ef hún nennti. Þegar Ásdís komst ein út og gekk meðffam húsinu sá hún lítinn svartan sportbíl koma á móti sér. Stefán hafði íylgst með ferðum hennar, lagt bílnum við húshomið svo hann hefði betri yfírsýn yfír útgönguleiðir úr húsinu. Þau fóru á veitingastað og Ásdísi varð um og ó þegar hún sá hvað hann pantaði dýran mat handa þeim. Á eftir fóra þau í bíltúr um borgina og hann sýndi henni helstu staði og götur. „Hér á ég heima“, sagði hann um leið og hann ók löturhægt ffamhjá stóm gömlu einbýlishúsi. Það stóð í velskipulögðum trjágarði sem var mikið upplýstur. Gangstéttin heim að breiðum tröppunum var upplýst með lágum garðlömpum sem stóðu í tveimur beinum röðum hvor sínu megin við hana. Það vom franskir gluggar á húsinu. Þetta var eins og höll í augum Ásdísar og hún fann hlýleika stafa ffá húsinu, rétt eins og hún þekkti það. „Nú ætla ég að sýna þér Elliðaárdalinn ef þú hefur áhuga.“ Þau óku þangað og upp að vatninu sem ekki var enn orðið ísilagt. „Oviðjafnanleg fegurð, sérðu tunglið?“ sagði hann um leið og hann lagði bílnum út í vegarkantinn. Hann lagði handlegginn utan um hana og dró hana að sér. Hún var hamingjusöm en um leið hrædd. Hrædd við að gera eitthvað sem seinna myndi særa hana. Þó að hún væri yfir sig hrifin af honum fann hún fyrir nagandi ótta við hið ókomna. Þó vildi hún ekki fyrir nokkum mun missa af samneyti við manninn sem sat við hlið hennar og hélt þétt utan um hana. Það fóm um hana áður óþekktir straumar sem hún hafði aðeins lesið um í bókum. Þau sátu þama góða stund án þess að segja nokkuð og horföu yfir vatnið. Ljósin á bæjunum tindmðu uns þau slokknuðu eitt af öðm. Lögreglubíll ók hægt ffamhjá og gaf þeim gætur en lét vera að stoppa. „Við þurfum að kynnast og til þess að það sé raunverulegt verðum við að segja hvort öðm eitthvað um okkur. Á ég að byrja ágrip ævisögu minnar?“ Hann sagði þetta brosandi. Hann sagði henni að faðir sinn héti líka Stefán og væri forstjóri tyrir tjölskyldufyrirtæki sem sérhæföi sig í ffamleiðslu og innflutningi á veiðarfæmm og ýmiss konar vömm fyrir fískiskipin. ,Afí minn sem einnig heitir Stefán rekur þetta með honum og síðan er mér troðið inn í það með góðu eða illu. Þess vegna er ég að læra viðskiptaffæði.“ Hann losaði tak sitt á henni og settist beinn í sætið. Spennan haföi sigið úr honum við að tala um sig og tjölskyldu sína. Honum varð hugsað til Hugrúnar, stúlkunnar sem móðir hans vildi að yrði konan hans. Hún var núna í Bandaríkjunum með foreldrum sínum. Hann haföi eiginlega aldrei verið hrifmn af henni en vissi að hún var yfir sig hrifin af honum. Þau höföu verið talsvert saman um sumarið, sofið saman nokkrum sinnum og þegar hún fór var hún viss um að þau væm trúlofuð þó að hann hefði aldrei sagt orð í þá áttina. Hann vonaði að hún kynntist öðmm og gleymdi honum. Hann lét það vera að minnast á Hugrúnu við Ásdísi. Það var gott að sitja í kyrrðinni þama við vatnið við hliðina á þessari hljóðlátu stúlku. Hún var svo ólík þeim stelpum sem hann haföi kynnst, svo laus við alla tilgerð. Hann yrði að fara varlega bæði sín og hennar vegna. „Ég er eina bam foreldra minna og stundum er ég afar einmana, þó að ég fínni minna fyrir því núna en þegar ég var yngri. Pabbi var ekki nema 18 ára þegar ég fæddist en mamma var 21 árs. Þau giftust einungis vegna mín og alveg lfá því ég man eftir mér hafa þau verið að ráðgera að skilja, þó aldrei hafí orðið úr því. Núna em það einungis eigumar sem halda Heima er bezt 381
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.