Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Síða 25
FARIÐ UT FYRIR
Ný alþjóða afgreiðslustöð (Terrninal)
var tekin í notkun í sumar af Air France flugfélag-
inu í París.
American Airlines
hefur aukið við 7 ferðum daglega á leiðinni Wash-
ington—New York. Notar félagið Douglas DC4, fjög-
urra hreyfla, 44^ farþega vélar á þessari leið.
Douglas Aircraft Co.
hefur nú lokið við tilraunir með að hyggja frystiklefa
í flutningaflugvélar af gerðinni DC. 4. (Skymaster).
Hingað til hafði aðeins verið flutt mjög takmarkað
vörumagn með venjulegum flutningavélum, og var
þá vörunum pakkað í ís. Þessir fljúgandi kæliskápar
taka svipað vörumagn og venjulegir járnbrautarvöru-
vagnar.
Ritstjóri brezka svifflugblaðsins,
„Sailplane and Glider“, stingur upp á því í ritstjórnar-
grein í ágústhefti blaðsins, að þeir svifflugmenn, er
lokið hafa vegalengdar-skilyrðisflugum fyrir silfur og
gull „C“ geri það að takmarki í hverju flugi, að ná
heim til þess staðar, er þeir hófu flugið frá. T. d. ef
svifflugmaður ætlar til staðar 100 km. í burtu frá
„startstað“, þá snúi hann þegar heim á leið, er hann
hefur náð þessu marki, og leggi sig fram til að ná
aftur velli þeim, er hann fór af stað frá. Þetta mundi
spara verulega benzín svo og tíma þann, er fer í að
elta uppi flugmenn, er lent hafa fleiri hundruð mílur
í burtu frá flugtaksstað. Eins og gefur að skilja, er
þetta talsverð raun fyrir flugmanninn og víst er um
það, að þeir svifflugmenn, sem fljúga langt í burtu
frá flugtaksstað, snúa síðan við og ná heim aftur,
eru tvímælalaust vel færir svifflugmenn. Þar sem við
Islendingar eigum enga silfur eða gull „C“ svifflug-
menn, kemur þessi uppástunga okkur ekki beint við.
Við vonum samt að ekki líði langt, þar til við eign-
umst marga silfur og gull „C“ menn, og væri þá
athugandi, að við kæmum upp einu aukaprófi, og
í því prófi yrði þá aðalprófraunin að fljúga einhverja
ákveðna vegalengd út frá „startstað“ og heim aftur
án lendingar. Vegalengdin mætti vera t. d. 50—75
km. Þessi prófraun mundi sýna ótvíræða hæfni þeirra,
sem hana leystu. Þessi sami ritstjóri virðist vera frem-
ur óánægður með svifflugsárangurinn í Englandi eftir
sumarið, sem nú er að líða, þrátt fyrir hæðarflugsmet
Philip Wills, 15000 fet, og „yfir land“ flug Prince
Bira, 186 mílur. Hann segir, að það fari mjög lítið
LANDSTEINANA ...
fyrir byrjendaþjálfun, og þeir einir fljúgi, sem eiga
einkavélar. Þá segir hann ennfremur, að ljóst sé, að
ef ríkisstjórnin meti svifflugið einhvers, þá sé nauð-
synlegt að hún styrki byrjendurna með fjárframlög-
um. Hann segir að það muni verða vinsælasta að-
ferðin, að aðstoða þá við kaup á byrjendavélum, svo
og tveggja sæta kennsluvélum. Ef stjórnin lækkaði
þau tæki og hluti, sem herinn lætur eftir sig, svo sem
dráttarspil og flugskýli, ofan í einn fjórða þess verðs,
sem hún nú vill fá fyrir þau, þá mundi það vera
mikil hjálp fyrir eldri svifflugklúbbana líka.
Minni hávaði i smá- og einkaflugvélum.
Dr. Theodore Theodersen og Arthur Regier N.A.C.A.
sérfræðingar sögðu á þessa árs fundi Institude of
Aeronautical Sciences, sem haldinn var í Detroit í
júní s.l., að fyrirsjáanlegt væri að mögulegt yrði að
minnka hávaðann af smá- og einkaflugvélum um allt
að 50%. Og spáðu því ennfremur, að 80—90%
hávaðaminnkun yrði möguleg síðar. En til þess þyrfti
að nota viftuskrúfu með mörgum blöðum og lágum
hraða á blaðendunum, en á skrúfublaðsendunum
mvndast aðal hávaðinn af flugvélunum.
Ný flugvélartegund.
Wolfgang Langewiesche, tilraunaflugmaður hjá
Kollsman Instrument Co., fór þess á leit á sömu
ráðstefnu, að flugvélaverkfræðingar reyndu að fram-
leiða flugvél, sem rétti sig sjálf út úr krappri beygju
(„spiral"), þegar stýrunum væri sleppt, og flygi þá
beint áfram og lárétt. Hann sagði að það hlyti að
vera mögulegt að byggja slíka vél, að hægt væri að
fljúga henni blindflug án sérstakra blindflugstækja.
Joseph Boylan,
yfirmaður vöruflutninga hjá American Airlines, sagði
í ræðu, sem hann hélt á ráðstefnu einni í Chicago
í apríl, að flugfélögin ráðgerðu að byggja stór vöru-
geymsluhús með kæliskápum fyrir matvæli, sem flutt
eru loftleiðis. Á ráðstefnunni var það almennt álitið,
að innan skamms mundi flutningsgjald á loftflutt-
um vörum lækka það mikið, að samkeppnisfært verði
við önnur flutningafarartæki. Vonandi er þetta vís-
irinn að því, að hægt verði að flytja matvæli yfir
heimshöfin á það ódýran hátt, að við íslendingar,
sem og aðrir, getum veitt okkur að borða nýja ávexti.
Ennfremur ættum við að geta komið því við að
flytja fiskin nokkar nýjan og unnin á erlendan mark-
að nokkrum klukkustundum eftir að hann veiðist.
FLUG - 23