Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Side 31
skeikað í útreikningmim. Ég tók nú við stjóminni
og við svifum niður yfir trén. Of hátt. Flugvöllur-
inn var á stærð við vasaklút!
Það hillti undir flugskýlið við hinn enda vallar-
ins og það nálgaðist áhugnanlega hratt. Á síðustu
mínútu ýtti ég inn benzíngjöfinni (throttle) og gaf
hreyflinum fullt benzín. Við sluppum við þakið á
flugskýlinu, en bilið var ekki nema örfáar tommur.
Við gerðum aðra atrennu að vellinum, en mistókst
að lenda einnig í það skipti. í þriðja sinn svifum
við niður til lendingar, og ég skellti vélinni þvert í
flugáttina (sideslip*) og lét hana detta sem næst
lóðrétta inn á völlinn, í þetta sinn stönzuðum við í
tveggja feta djúpum snjó á enda flugbrautarinnar.
„Hér er ekkert benzín,“ sagði ég. „Þessi völlur er
í eyði.“
„Að minnsta kosti ættum við að geta fundið út,
hvort þetta er Napley Green,“ sagði hann. „Það er
eitthvcrt hús þarna á bak við trén. Ég skal skreppa
þangað og fá leiðbeiningar um leiðina til Washing-
ton. Við ættum að Vera örstutt þaðan núna.“ Hann
kom fljótlega aftur.
„Það var mjög feit blökkukona þarna inni, sem
heldur að við séum í Maryland,“ tilkynnti hann.
„Það er ekkert benzín hérna, en við getum fengið
það á Fort Meade, sem er stutt héðan.“
„Snjórinn er allt of djúpur til að hægt sé að hefja
sig til flugs hér, en komdu inn,“ sagði ég.
Hann leit efablandinn á snjóinn. „Ég vildi að við
hefðum skóflu,“ sagði hann. Síðan byrjaði hann að
róta snjónum frá hjólunum og ég klifraði út úr með
erfiðismunum til að hjálpa honum. Við hreinsuðum
svæði, um það bil tvær flugvélalengdir og klifruðum
síðan kófsveitt inn í aftur. Með því að láta hemlana
hjálpa okkur til að fá nægan kraft, höfðum við
næsturn nógan spöl til að lyfta vélinni áður en við
rákumst á snjóinn, enda tókst mér að komast á loft
á þessu stutta svæði.
Við fundum Fort Meade eftir fáeinar mínútur.
* Sideslip er notað, þegar lent er á ósléttum eða litlum
völlum. Það er framkvæmt með því t. d. að stíga út fullt
hliðarstýri til hægri og um leið halla vélinni til vinstri. Þetta
gerir það að verkum, að vélin eins og dettur næstum lóðrétt
til vinstri, og fer því tiltölulega stutta vegalengd yfir jörð,
miðað við það sem hún lækkar flugið. Orsökin er sú, að með
þessari aðgerð snýr maður skrokknum þvert við flugáttina, og
eins og gefur að skilja veitir hin háa, flata hlið skrokksins
loftinu meiri mótstöðu heldur en hinir straumlínulöguðu
vængir. Og við það að vængendinn kemur á undan svona
skakkur við flugáttina, missir hann burðarmagn sitt að mjög
miklu leyti. Þess vegna dettur vélin hér um bil lóðrétt niður.
Þetta er mikið notað við nauðlendingar á smærri vélum.
Það voru tveir opnir vellir. Annar var flugvöllurinn,
en báðir litu svipað út vegna þess að þeir voru huldir
snjó. Ég kaus annan og bjó mig undir að lenda.
Þá sá ég allt í einu hinu megin við veginn eitthvað,
sem líktist flugbraut undir snjónum. Við hættum
við að lenda þarna og snérurn yfir veginn og lentum
þar. Bifreið, sem kom eftir veginum, nálgaðist okkur
og liðsforingi kom út.
„Eitthvað í ólagi?“ spurði hann. „Konan mín og
ég héldum að þið rnynduð lenda í skriðdrekagildr-
unni hinu megin við veginn. Við urðurn dálítið
hrædd.“
Skriðdrekagildru! Það hefði orðið okkar sðasta. En
ég hugsaði ekki mikið um skriðdrekagildruna að þessu
sinni. Mér fannst höfuðið vera alveg að springa og
ég leit sljólega á þau til skiptis.
Þau báru mig yfir í bifreið Selmans liðsforingja
og óku mér heim til hans. Frú Selman afklæddi mig
og lét mig ofan í rúm. Liðsforinginn kom með eitt-
hvað brennheitt til að drekka. „Þetta er gott fyrir
yður. Drekkið það og ég er viss um að þér sofið
rólega til morguns. Kunningi yðar og ég ætlum að
fara spottakorn í skriðdreka. Hann heldur að sér
muni þykja það gaman.“
Auðvitað þykir honum gaman að því. Ég stakk
höfðinu niður í svæflana og varp öndinni — mig
langaði auðvitað ekki síður til að koma í skriðdreka,
en samt fór ég nú að sofa. En ekki fyrr en ég hafði
tekið ákvörðun. Hvort sem var náðum við ekki að
gista fyrstu nótt ferðarinnar í Alexandríu, — en í
framtíðinni ....
I framtíðinni ætlaði ég að vera heilbrigð, þegar ég
flýgi eitthvað. Ef þú ert það ekki, hvaða gagn er þá
fyrst og fremst að því, að hafa heilsu?
Tólf amerískar flugvélaverksmiðjnr
hafa nú pantað léttar talstöðvar, sem General Elec-
tric Co. framleiðir fyrir litlar einka- og kennslu-
flugvélar.
Flugklúbbur stofnaður á Akureyri.
Nýlega hefur verið stofnaður á Akureyri flugklúbb-
ur, er það sameignarfélag nokkurra ungra manna,
sem flestir eru meðlimir í Svifflugfélagi Akureyrar.
Hefur klúbburinn þegar keypt 2 flugvélar af gerð-
inni Fleet frá Canada. Vélarnar eru þegar komn-
ar til landsins, en hafa ekki enn verið settar saman.
Markmið klúbbsins er aðeins að tryggja meðlimun-
um, að þeir geti stundað flugíþróttina með eins lágu
verði og möguleikar frekast leyfa.
FLUG - 29