Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Síða 9

Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Síða 9
flugvelli í Vestmannaeyjum. Erling Ellingsen flug- málastjóri veitti félaginu fulla liðveizlu í þessu máli, sem var eitt meðal fyrstu viðfangsefna hinn- ar nýju flugmálastjórnar, og urðu málalok þau, að flugbraut í Vestmannaeyjum varð lokið árið 1947. Er það fyrsta flugvallarmannvirki, sem íslending- ar gera sjálfir. Árið 1947 var flugráð stofnað og eiga nú sæti í því fimm menn, þeir Bergur G. Gíslason, Guðmundur I. Guðmundsson, Hjálmar Finnsson, Þórður Björnsson og Agnar Kofoed-Hansen, sem jafnframt er formaður þess. Þá var um leið skip- aður flugvallastjóri ríkisins og var svo ákveðið í lögum um flugráð og flugvallastjóra ríkisins, að í þeirra höndum skyldi vera yfirstjórn allra flug- mála í landinu ásamt flugmálastjóra. Eins og áð- ur hefur verið getið, lét Erling Ellingsen af emb- ætti flugmálastjóra árið 1951 og þá voru sameinuð í eitt embætti flugmálastjóra og flugvallastjóra ríkisins. Hvað viljið pér segja um starfsemi flugráðs frá upphafi? „Flugráð tók til starfa í júlímánuði 1947 og þró- unin í starfsemi þess hefur verið ákaflega ör eins og reyndar í öllum flugmálunum. Það er óhætt að Starfsfólk i skrifstofu flugmálastjóra. Starfslið flugmálastjórnarinnar á Keflavikurflugvelli. FLUG - 7

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.