Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Blaðsíða 13
Kristinn Jónsson
fulltrúi flugmálastjórnarinnar á
Akureyri frá 1947.
eða Stafangurs. Flugmaðurinn, sem leggur upp frá
París, verður að gera áætlun um að hafa nægilegt
eldsneyti og haga hleðslu vélar sinnar þannig, að
hann geti flogið leiðina París—Keflavík—Prestvík
eða Stafangur. Flest flugfélög vilja forðast að þurfa
að gera slíkar flugáætlanir, því flugvélin þarf að
liafa meira eldsneyti innanborðs og þar af leiðandi
færri farþega og minna af vörum. Það breytti öllu
viðhorfi við samningu flugáætlunar, að geta til
dæmis áætlað að fljúga frá Hamborg til Keflavík-
ur og geta lent á Sauðárkróki eða Egilstöðum, ef
Keflavík lokast eftir að flugvélin leggur af stað.
Skarphéðinn Vilmundarson eftir-
litsmaður Vestm.eyjaflugvallar.
Þegar búið er að koma upp fjölmennu ílugþjón-
ustukerfi og aðstöðu tif þess að taka á móti og af-
greiða millilandaflugvélar, þarf það starfslið að
hafa nægileg verkefni og þau byggjast á því að
nógu margar flugvélar leggi leið sína um landið.
Þess vegna þarf að vinna að því, að koma upp
fullkomnum varaflugvelli norðanlands."
Hvað viljið þér svo segja um viðtöku Keflavík-
urflugvallar?
„Allt frá því að íslendingar tóku við öllum al-
mennum rekstri Keflavíkurflugvallar árið 1951,
hefur verið unnið að því í vaxandi mæli, að ís-
FLUG - 11