Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Qupperneq 14

Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Qupperneq 14
Flugmálastjóri, sérjraðingar ICAO og aðrir starfsmenn flugmálastjórnarinnar. F. v. Mr. Goudie, Mr. Hynes, As- geir Pétursson, Ingólfur Bjargmundsson, flugmálastjóri, Sigfús H. Guðmundsson, Guðjón Tómasson. lenzkir menn gætu tekið við sem flestum störfum þar. Þess vegna varð að hefja stórfellda þjálfun margra manna til þess að þeir gætu tekið að sér hin margvíslegu flugþjónustustörf þar syðra. Undanfar- in 6—7 ár hafa alltaf verið erlendis 2—5 starfsmenn ílugmálastjórnarinnar vegna Keflavíkurflugvallar, og hafa nú alls 50—60 manns notið þjálfunar í flug- umferðarstjórn, flugumsjón, flugvélaafgreiðslu. flugratsjártæki og flugvallarekstri. Hafa allir þessir menn notið afargtiðrar menntunar hver í sinni sérgrein og lokið öllum prófum yfirleitt með ágætum. Það hefur að sjálfsögðu vakað fyrir okkur, að vera sjálfum okkur nógir um allan rekstur Kefla- víkurflugvallar. Með fyrrnefndri þjálfun starfs- manna hafa skapazt auknir möguleikar til þess að taka við fjölda nýrra starfsgreina og margs konar þjónustu á Keflavíkurflugvelli. Við liöfum haft á því vakandi auga, að láta alla þessa starfsemi bera sig fjárhagslega, og nú er svo komið, að aðaltekju- lind flugmálanna er Keflavíkurflugvöllur. Má segja, að þær tekjur hafi staðið að verulegu leyti undir framkvæmdum í ílugvallagerð og öryggismálunt undangengin ár. Svo ég víki aftur að starfsmönn- um flugmálastjórnarinnar, þá er mér það sérstakt ánægjuefni að vita til þess, að hver einasti maður vinnur að sínum störfum af miklum áhuga, bæði með því að hugsa stöðugt um að þjálfa sig og auka við þá þekkingu, sem fyrir er, og sömuleiðis með því að vinna af áhuga á sjálfu málefninu. Starfs- andi hefur ávallt verið með ágætum og verður það aldrei of lofað. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka öllum starfsmönnum flugmálastjórnar- innar þeirra frábæru störf og ég vil segja það, að ég lít afar björtum augum á framtíðina, ekki sízt vegna þess, hve ágætir og starfhæfir menn vinna að þessum málum.“ Hvað viljið þér að lokum segja um framtíðar- horfur og það, sem framundan er i flugmálunum? „Ég vil svara þessu þannig, að taka bókstaflega upp ummæli mín í síðasta hefti „Flugs" og beina máli mínu til fjárveitingavaldsins og þeirra, sem fjármálum okkar íslendinga stjórna. „Framundan eru svo mörg og stór verkefni, að 12 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.