Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Side 19

Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Side 19
VíStal víS Sigfús H. Guðmundsson yfirmann flug- öryggísþioniistuiimar Sigíús H. Guðmundsson fulltrúi Flugmálastjóra hefir starfað hjá Flugmálastjórninni frá því um miðjan júlí 1945 og er annar elzti starfsmaður henn- ar. Hann dvaldist tæpt ár í Bandaríkjunum 1944 til þess að kynna sér flugöryggismál og flugvallar- stjórn, en var kvaddur heim í miðjum klíðum til þess að vinna að rannsókn og leit að heppilegum flugvallastæðum og vegna starfsmanna hefir hann ekki haldið áfram því námskeiði, sem hann var byrjaður á. Sigfús heíir verið einn af fulltrúum ís- lands á mörgum ráðstefnum um flugmál, var á fyrstu ráðstefnu ICAO í Dyflinni 1946, í París, Genf og Lundúnum 1948 og aftur í Lundúnum 1949 og 1953 og loks í Montreal á síðasta hausti. Jafnframt var hann á norrænni flugmálaráðstefnu í Dan- mörku síðastliðið haust. Vér lítum á erindisbréf Sigfúsar og sjáum þar, að honum er ætlað margþætt starf og umsvifa- mikið. Skráin lítur þannig út: Málefni varðandi ICAO, flugumferðarstjórn og flugstjórnarmiðstöðin á Reykjavíkurflugvelli, mál- efni varðandi öryggisútbúnað á öllurn flugvöllum, stjórn á björgunar- og leitarflugi vegna týndra flug- benzíni og olíum til flugvéla, sem numið hefur 40—50 miljónum króna á ári undanfarin ár. Hér við bætast svo gjaldeyristekjur íslenzku flugfélag- anna, sem nú orðið skipta tugum milljóna króna á ári. Ekki má svo gleyma því, að einnig eru miklar gjaldeyristekjur af ýmis konar vinnu hjá varnarlið- inu, annarri en byggingavinnu, og má áætla, að óbeinar gjaldeyristekjur í sambandi við flugmálin séu um 100 milljónir króna á ári. Sést af þessu, hve flugmálin eru orðin þýðingarmikill liður í utan- ríkisverzlun og gjaldeyrisafkomu þjóðarinnar." h. Sigfiís H. Guðmundsson. véla, útgáfu NOTAM, sjóflughöfnin á Reykjavík- urflugvelli, slökkviliðið, fjarskiptamál. Eins og sjá má af þessu, hefir Sigfús í mörgu að snúast. Vér spyrjum hann fyrst um samstarfið við ICAO, Al- þjóða Flugmálastofnunina. „íslendingar eru ein af stofnþjóðum ICAO, sem verður 10 ára á miðju næsta sumri. Á ráðstefnu ICAO í Dyflinni 1946, sem var fyrsti fundur eftir stríðið um loftferðir yfir Norður-Atlanzhaf, var m. a. ákveðið að hér á landi skyldi verða flugstjórn- armiðstöð og önnur skyld starfsemi, svo sem fjar- skiptaþjónusta og veðurþjónusta. Þá lýstum við yf- ir, að þetta gætum við ekki tekið að okkur nema því aðeins, að við fengjum þessa þjónustu endur- greidda að verulegu leyti, því að okkur væri ofviða að annast slíka þjónustu fyrir alþjóðaflug ef við ættum að kosta hana einir.“ Hvenœr tóku svo íslendingar að sér þessa þjón- ustu „Það var í nóvembermánuði 1946 á vegum ICAO og var hún fyrst veitt í hálft annað ár upp á vænt- anlegar greiðslur, en á ráðstefnu ICAO í Genf 1948 var gengið frá fjárhagsgrundvelli þessara mála og þá jafnframt gerður samningur milli íslands og þeirra 9 ríkja, sem þá áttu aðild að þessum samningi. Hefur starfsemi þessi farið sívaxandi ár frá ári og hafa fylgt því ærin bréfaviðskipti, sem ég hefi haft með höndum, en við þeim er nú að taka Friðrik Diego, sem verið hefir starfsmaður Flugmálastjórn- arinnar nokkur ár.“ FLUG - 17

x

Flug : tímarit um flugmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.