Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Qupperneq 23

Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Qupperneq 23
Hvernig er háttað starfsemi Flugmálastjórnar- innar á Keflavíkurflugvelli og hvert er starfslið hennar þar? „Starfsemin skiptist í fimm deildir: Flugumferð- arstjórn, flugumsjón, flugvélaafgreiðslu, flugvirkj- un og viðhald mannvirkja Flugmálastjórnarinnar á vellinum auk aðalskrifstofu. Bogi Þorsteinsson yfirflugumferðarstjóri er deildarstjóri í flugumferð- arstjórn, Bjarni Jensson í flugumsjón, Kristbergur Guðjónsson í flugvélaafgreiðslu, Ólafur Alexand- ersson í flugvirkjun og Haraldur Ágústsson er deildarstjóri í viðhaldi mannvirkja. Starfsliðið í öllum deildum er samtals rösklega 60 manns. Ég vil taka fram, að til þessara starfa hafa valizt ungir rnenn og áhugasamir og eru þeir fyllilega starfi sínu vaxnir. Hafa þeir fengið þá beztu menntun, sem unnt er að fá, hver í sinni grein, bæði innan- lands og utan.“ Hvernig gengur samstarfið við varnarliðið? „Á Keflavíkurflugvelli höfum við þurft að hafa mjög nána samvinnu við varnarliðið um alla stjórn vallarins. Sú samvinna hefir ávallt verið með mikl- um ágætum og leggja báðir aðiljar áherzlu á að leysa hvors annars vanda, þegar þess er nokkur kostur. Má fullyrða, að sú samvinna hafi verið báðum til mikilla hagsbóta." Nokkur orð um völlinn sjálfan? „Já, Keflavíkurflugvöllur er einn af stærstu og fullkomnustu flugvöllum í heimi. Á honum eru fjórar flugbrautir og er sú lengsta 10 þúsund feta löng (rösklega 3000 metrar) og við enda hennar er öryggisbraut, 1000 feta löng, sem ekki er malbikuð. Allar stærstu flugvélar geta lent á vellinum, hvort sem um er að ræða stærstu gerðir farþegaflugvéla eða stærstu gerðir hervéla. Keflavíkurflugvöllur er mjög mikilvægur fyrir farþegaflugið yfir Atlanzhaf, og það er ekkert launungarmál, að völlurinn er tal- inn nijög mikilvægur frá hernaðarsjónarmiði og veldur því hin landfræðilega lega íslands, því landið er nákvæmlega miðja vegu milli New York og Moskvu eftir stórbaug og er því augljóst, að það er ekki sama hver hefir afnot af Keflavíkurflug- velli eða öðrum flugvöllum hér á landi í hinu kalda stríði milli austurs og vesturs. Má í þessu sambandi taka fram, að Bandaríkjamenn hafa ávallt talið mikilvægt, að geta notað Keflavíkurflugvöll sem viðkomustað vegna hinna miklu flutninga til herja sinna í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Flugvélar- hersins hafa viðkomu á Keflavíkurflug- velli aðallega á vesturleið, en á austurleið eru það einkanlega þrýstilofts-knúnar orustuflugvélar og flutningaflugvélar, sem fljúga norðurleiðina yfir Atlanzhafið þegar lendingarskilvrði eru slæm á Azoreyjum.“ Koma margar þrýstiloftsvélar á völlinn? „Já, það er óhætt að segja því að Bandaríkja- menn senda tíðum þrýstiloftsorustuflugvélar sínar fljúgandi yfir Atlanzhafið, þær hafa yfirleitt frem- ur stutt flugþol og verða því að íljúga í áföngum yfir hafið. Liggur þá leiðin um Kanada — Græn- land — ísland og Skotland. Hefir oft komið fyrir, að 30—40 slíkar flugvélar hafi komið á völlinn og jafnvel upp í 150 orustuflugvélar á einum degi.“ Fer ekki mikill fjöldi farþega um Keflavikurflug- völl? „Jú, þeir skipta þúsundum á ári hverju og er þar að sjálfsögðu misjafn sauður í mörgu fé. Oft koma þangað ýmis þau stórmenni, sem helzt er getið í heimsfréttunum. Þegar slíkir menn koma, er full- trúa Flugmálastjórnarinnar ætlað að taka á móti þeim og sjá um að dvöl þeirra verði sem þægileg- ust hér á landi. Þessu fylgir töluverður erill og umstang því að það er sjaldnast á venjulegum skrifstofutíma, sem þessir gestir koma. Það er ekki ósjaldan að maður er rifinn upp úr rúminu um miðja nótt til þess að taka í hendina á drottningu, ráðherra, filmstjörnu eða marskálki.“ Er yður nokkuð sérstaklega minnistœtt úr starf- inu? „Ég get nú ekki sagt að það sé beint í sambandi við starf mitt, en ég er fyrsti íslendingurinn, sem hefi flogið í þrýstiloftsflugvél, og stjórnaði ég henni sjálfur í 45 mínútur. Þetta var í ágúst 1952. Forum við frá Keflavíkurflugvelli í T-33, en það er tveggja sæta vél, sem notuð er til æfinga. Við flugum upp að Hvítárvatni á sex mínútum og héldum okkur mest í 23 þúsund feta hæð. Úr þeirri hæð fórum við þráðbeint niður í 12 þúsund feta hæð og smá- lækkuðum okkur úr því. í 12 þúsund feta hæð lang- aði mig til að sjá hver áhrif snögg beygja hefði á mig. Spurði ég flugmanninn hvort ég mætti ekki taka snögga beygju og jánkaði hann því og hélt áfram að lesa í blaði sínu. Setti ég þá stýrin í botn ef svo mætti segja og fann ég hvernig blóðið streymdi úr höfðinu og efri hluta líkamans, og yfir mig færðist magnleysi. Var ég þá ekki seinn á mér að koma vélinni aftur á réttan kjöl. Það heyrir kannske undir þennan lið að geta þess, að ég var kosinn í hreppsnefnd í Hafnarhreppi hér um árið, en féll við síðustu kosningar við litinn orðstír.“ h. FLUG - 21

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.