Heimaklettur - 01.12.1943, Qupperneq 6
Loftvarnir
Leiðbeiningar fyrir almenning
ALMENNAR REGLUR
1. Merki um hættu er hækkandi og lækkandi tónn frá
rafflautu bæjarins í 3 mín. samfleytt.
2. Aðvarið aðra íbúa hússins, ef þeir skyldu ekki hafa
heyrt hættumerkið.
3. Slökkvið strax á rafmagnstækjum og gasvélum.
4. Látið gluggana standa opna meðan hættan stendur
yfir.
5. Takið börn, sem kunna að vera ein síns liðs úti, inn í
húsið til yðar og látið þau dvelja þar meðan hætta er
á ferðum.
6. Haldið kyrru fyrir í húsinu, sem þér eruð stödd í
meðan hættan stendur yfir, — í loftvarnabyrgi þess
eða á öðrum stað innan þess, — því þér stofnið lífi
yðar í hættu með því að fara út undir bert loft með-
an árásar er von.
7. Ef þér eruð stödd á götum úti, þegar gefið er merki,
um hættu, skuluð þér strax leita yður afdreps í næsta
húsi.
8. Þeir, sem staddir eru á bersvæði meðan árás stendur
yfir, skulu leita skjóls, ef þess er kostur, og leggjast
niður.
9. Hlýðið tafarlaust þeim fyrirskipunum, sem yður
kunn^^öyerða gefnar af lögreglu eða starfsliði loft-
varnanna.
10. Merki um að hættan sé liðin hjá er stöðugur tónn frá
rafflautum bæjarins í 5 mínútur.