Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 32

Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 32
EYJABÁLKUR: HERSÖNGUR VESTMANNAEYJA 1856 Nú gengur yfir heiminn ógnar skálm- öld eins og allir vita. Allt logar í eldi og blýi og við hér norður á hjarta veraldat komnir inn í hringiðu stríðs og stórpóli- tískra strauma stórvelda heimsins. Okk- ur þykir ekki lengur neitt furðulegt þó við heyrum og sjáum erlenda herflokka ganga um götur og torg bæja og þorpa eftir hröðum og taktföstum göngulögum, það er orðinn daglegur viðburður. En ósjálfrátt verður manni þá stundum á að hvarfla huganum langt aftur í tímann eins og t. d. til áranna 1853—1860 þegar Vestmannaeyjar áttu sér sinn eigin her- söng og höfðu hér herflokk, sem æfði vel og reglulega göngur og annað. Var það allstór hópur, miðað við fólksfjölda hér þá, eða 70 manns. Mun flokkur þessi hafa verið stofnaður með það fyrir aug- um að reyna að koma í veg fyrir jafn hörmulega atburði sem Tyrkjaránið 1627. Flokkur þessi var sæmilega að vopnum búinn á þess tíma vísu og var- stjórnað af Andreas August Kohl, sem var sýslumaður í Vestmannaeyjum 1853 til dauðadags 22. janúar 1860. Iíafði hann verið í landher Dana og hlotið þar kapteins nafnbót. Hann hafði mik- inn áhuga fyrir hernaði og hernaðaræf- ingum og kom hér á fót nefndum her- flokk. Fékk hann styrk úr ríkissjóði Dana til viðhalds flokkinum og búa hann vopnum og einnig lagði J. P. T. Bryde kaupmaður i Vestmannaeyjum fram nokkurn styrk til flokksins. En við dauða kapt. Kohls lognuðust æfingar þessar niður og eymir nú ekkert eftir af þeim nema hersöngurinn einn, sem og einnig var að falla í gleymsku. Það voru hinir mestu gleðidagar Eyjaskeggja þeg- ar blásið var og bumbað til æfinga og fóru þá allir, sem vettlingi gátu valdið, á „Skansinn“ eða inn á „Brimhóla“ til að horfa á, en þar fóru æfingarnar fram. — fyrir nokkrum árum voru til hér ein- hverjar leifar af fallbyssu, en hvort hún hefur verið notuð fyrir, eftir eða um þenna tíma veit ég ekki, og ekki hvað orðið hefur um leifar þessar. Enginn mun nú lifandi, sem þátt tók í æfingum þessum, síðan Olafur Magnússon frá Ný- borg andaðist, en sagnir herma að hann hafi tekið þátt í æfingunum að einhverju leyti. Hersönginn birti ég hér eftir því sem ég lærði hann í æsku og vona að einhver hafi gaman að kynnast honum. Hann er ortur undir hinu alþekkta danska göngu- lagi: „Den Gang jeg drog af sted“, og hljóðar svona: Allir það vitum vér, að vænum drengjum ber, að vernda Iand sitt voða við og vondum ránaskap; að rækja reglu og frið og ríkja eining með og gæta alls sem gagnlegt er í góðum telagsskap, því það sem einn ei megnar þó aflið reyni sitt. sjötíu verum vegnar, sem væri ekki neitt; ef allir ásamt þér, fyrir ættjörð berjumst vér. Húrra! — Húrra! — Húrra! — Allir vitum vær hvað eining orkað fær, og að Iand vort enn má binda um blóðug örvasár; því fyrri alda frægð 24 HEIMAKLETTUR

x

Heimaklettur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimaklettur
https://timarit.is/publication/1873

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.