Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 33

Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 33
frá 09s var orðin bægð, og höfum við því þungan stunið þrátt í mýmörg ár. En nú er mál að rísa af rökkursvefni senn, s\ o ölium megum vísa að vorðnir erum menn. Nú vit við höfum á, að verja oss og slá. Húrra! — Húrra! — Húrra! — Þá komi hver sem má, at' oss er enginn sá, sem ei er gæddur góðum hug og giæstum hetjumóð. Afram, áfram, áfram, fyrir vort kæra rann. við skulum sýna að ljúft oss er að láta líí og bióð. Hina aðra vesla menn sem að ekki voga með við skulum vernda voða frá og varna við ófrið . Sjötíu saman við, er sélegt hjálparlið. Húrra! — Húrra! •— Húrra! — Sem betur fór þurfti flokkur þessi aldrei að verja Eyjarnar fyrir Tyrkjum, og sem sagt lognaðist hann út af við dauða Kohls kapteins og var aldrei end- urskipulagður. Og þar sem svo langt er um liðið mun nú mjög hæpið að fáist nokkrar upplýsingar um fyrirkomulag æfinga eða annan fróðleik um þetta, en þar sem ég kunni söng þeirra fannst mér rétt að birta hann og forða frá gleymsku. AN í'þróttafélagið Þór 30 ára. líking, og skal hverjum þeim, er unn- ið hefur sér þann heiður, að vera handhafi stærri bikarsins, vera af- hentur slíkur eftirlíkinga bikar, þeg- ar sá stærri hefur gengið til annars manns. Ennfremur afhenti Haraldur Ei- ríksson fjárupphæð frá þeim stofn- endum Þórs, sem enn eru á lífi, og skyldi henni varið til kaupa á hlut, sem gengi á milli manna, sem sýndu mestan áhuga í félagslífinu ár hvert. Einnig barst Þór bikar frá knatt- spyrnufélaginu Týr. Það verður ekki annað sagt um íþróttafélagið Þór, en að áhuginn til að efla íþróttaiðkanir og líkams- rækt, sé hinn sami og fyrir þrjátíu árum, þegar hornsteinninn var lagð- ur að stofnun félagsskaparins til ó- metanlegs gagns fyrir þetta byggð- arlag, og sýnir það bezt tilgangur þeirra gjafa, sem félaginu bárust á þrjátíu ára afmælinu frá stofnend- um félagsins. Að síðustu er þess óskað, að starf Þórs megi verða með sama glæsileik og hingað til og hin háleita hugsjón, sem hann hefur helgað sér: að skapa heilbrigða sál í hraustum líkama, dvíni aldrei. F. G. J. „Þeir hiutir eru til, sem ekki verður lýst og þar á meðal er sólin“. Victor Hugo. Ég hef ekki trú á þeim mönnum, sem láta það bíða dauða síns að hjálpa öðrum með peningum sínum. Georg Eastman. Hugsanir þínar eru lífseldur þinn. Slokkni þær, ertu ónýtur, hvort þú ert lifandi eða dauð ir. Þ. Þ. Þ. Gargans-spilið (jassinn) verður við líði svo lengi sem fólkið hlýtir á hljóðfæraslátt með fótur.um í stað heiians. John Philip Sousa. Vér notum aðeins lítinn hluta heiia vors ennþá. Onotaði hlutinn er ótakmarkaður. Dr. Charles Mayo. Eins og dagurinn, sem vel er varið, færir r.ætan svefn, þannig færir vel notuð ævi sælan dauða. Leonardo da Vinci. HIIMAKLETTUR 25

x

Heimaklettur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimaklettur
https://timarit.is/publication/1873

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.