Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 34

Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 34
 27. /1. Sökk bélbáturmn Geir goði. Báturinn var á heimleið úr fiskiróðri um tvær sjómílur vestur af Þrídröngum, er að honum kom skyndi- lega mikill leki. Vélbáturinn Glaður kom að hin- um sökkvandi bát, er komið var kvöld. Gerðu skipverjar á Glað tilraun til að draga Gfir goða til lands, en við Þrídranga varð að skera á drátt- artaugina og sökk Geir innan fárra mínútna. Tókst skipverjum á Glað að bjarga áhöfn Geirs, þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Skipstjóri á Glað var Olafur Sigurðsson frá Skuld. Geir goði var 21 smálest að stærð, byggður í Reykjavík 1925 og eign Tangabátanna h.f. Skipstjóri á Geir goða var Kristinn Sigurðsson frá Skjaldbreið. 28. /1. Varð það slys, að fjögra ára gamall drengur varð fyrir bíl og lézt nokkru síðar á sjúkrahúsinu hér. Drengurinn hét Kristinn Breið- fjörð og var sonur hjónanna Þorsteinu Þorvalds- dóttur og Hermanns Jónssonar, Kirkjuveg .53 hér. Seint í janúar féll Sigurður Einarsson kyndari á e.s. Snæfell í ,',dokkina“ í Fleetwood og drukkn- að. Hann var kvæntur og átti tvö börn, 10 og 13 ára. 20./2. Gerði suðvestan aftaka veður með mikl- um sjógangi. Flestir bátar voru á sjó þennan dag og höfðu lagt vestur af Þrídröngum. Veðurhæðin og sjógangurinn var svo mikill, að margir bátanna urðu að skilja eftir meira og minna af línunni. Vélbáturinn Ver fékk á sig brotsjó þennan dag, þegar hann var á heimleið. Allt, sem lauslegt var ofanþilja, sópaðist burt, er sjórinn reið yfir; ljósa- útbúnað tók af stýrishúsinu, húsið skekktist sjálft og' línuspilið gekk úr skorðum. Skipstjóri á „Ver" er Jón Guðmundsson frá Goðalandi, 28./4. Tók Sparisjóður Vestmannaeyja til starfa. Forstöðumaður hans er Þorsteinn Þ. Víg- lundsson, skólastjóri. 11./5. Vetrarvertíð lokið. Sjóveður voru yfir- leitt óhagstæð og oft aftaka veður. Aflahæsti bát- ur var v.b. Lagarfoss VE 292. Skipstjóri Jóhann Pálsson. Aflaði Lagarfoss 420 smálestir af haus- uðum og slægðum fiski, en það er að verðmæti kr. 240.000.00, auk lifrar, en ^nagn hennar var 36.000 lítrar. 21./5. Féll Júlíus Kristjánsson fyrir borð af v.b. Lagarfossi og drukknaði. Báturinn var að dragnótaveiðum vestur á Selvogsbanka. Júlíus var ættaður frá Skoruvík á Langanesi. Isleifur Högnason fyrrv. alþm. ræðst frá 1. júní sem aðalframkvæmdastjóri til Kaupfélags Revkja- víkur og nágrennis. 15./7. Sá Magltús Guðmundsson frá Vestur- húsum hval á floti vestan Heimaeyjar. Brá hami þegar við og fékk m.b. Emmu til að fara með sig og athuga hvalinn. Reyndist þetta vera stór búr- hvalur. Hann var illa útleikinn á annarri hliðinni. sennilega eftir tundurdufl eða einhverskonar sprengju. Hvalurinn var dreginn inn á höfn og síðan norður fyrir Eiði og lagt þar upp í sand. Ekkert gagn mun hafa orðið af hval þessum. vegna þess að nokkrum dögum síðar tók hann út af Eiðinu og hvarf algerlega. I ágúst var lokið við að steypa utan um ieiðslu sjóveitunnar um 1500 metra að lengd. Dagana 8. 28 HEIMAKLETTUR

x

Heimaklettur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimaklettur
https://timarit.is/publication/1873

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.