Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 9

Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 9
Sjóræningjaskip fró dögum Tyrkjaránsins. irliði. Hér, milli allra þessara hólma, myndi Tyrkinn ekki rata að einu smá eynni, Heimaey, sem væri byggð. Her- skarar djöfulsins hefðu heimsótt auð- ugri héruð, og þessum lítilmótlega stað yrði þyrmt. Það voru tvö prestaköll á hinni litlu ey. Prestarnir og íbúarnir, scin fljótlega fengu fregnir af hinni miklu hættu, sökktu sér niður í bæn, von og frómt aðgjörðarleysi. En íbúar Dönskuhúsa hegðuðu sér öðruvísi, þeir héldu ráð- stefnu og hurfu ti.l athafna. Við verzlun- arstaðinn lá danska skipið Krabbinn. Skipstjórinn, Hinrik Thomsen, dró skip sitt eins nærri landi og hægt var, og að- stoðaði síðan með mönnum sínum kaup- manninn á verzlunarstaðnum, Lauritz Bagge, og menn hans við að reisa virki og grafa grafir um Dönskuhúsin, aðal- stöðvar hins litla bæjar. Fallbyssum var komið fyrir og skotfæri dregin að. Nokkrum duglegum íslendingum, sem voru viðloðandi á verzlunarstaðnum, voru fengnar byssur og höggvopn, og voru þeir æfðir lítilsháttar. Það urðu kvíðafullir dagar í Heimaey, en það létti yfir mönnum, þegar fréttist að Tyrkirnir, sem vestur höfðu farið, væru horfnir, og að þeir, sem rænt höfðu grimmilega á Austfjörðum, væru sigldir til hafs aftur. Hinn 16. júlí 1627 sáu Eyjabúar þrjú skip stefna upp undir Eyjarnar með danska fánann við hún. Þau snéru við og sigldu aftur til hafs. Guði sé lof, það voru dönsk herskip, sem hreinsuðu höf konungs! íslendingarnir tóku á sig náð- ir, en Danirnir voru á verði. Þessu var þannig varið, að ræningja- skipin tvö, sem fóru ránshendi um Aust- urland, höfðu haldið til hafs með mik- inn ránsfeng. En það fer betur á, að vér gjörum „sögulega“ grein fyrir því, hvernig stóð á ferðum þessara Tyrkja í raun og veru. Fúlmenni eitt af Norðurlöndum, það er sagt, að hann héti Páll, og væri áður HEIMAKLETTUR S

x

Heimaklettur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimaklettur
https://timarit.is/publication/1873

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.