Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 20

Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 20
mannaeyjasýslu“. Bók þessi hefst með því, að þar er innfært ávarp það og reglugerð sú, sem fyrr um getur. Fyrsti fundur, sem færður er í bók þessa, er haldinn laugardag 13. júní 1863, og er hann nefndur aðalfundur, en ekki stofn- fundur. Þetta bendir til þess, að félagið hefur verið stofnað árið 1862, eins og' um getur í sóknarlýsingu séra Brynjólfs, og er því nú (1943) 81 árs, því að um aðalfund eins félags getur ekki verið að ræða, nema að eitthvert starf félags sé að baki, sem gefa á skýrslu um. Enn- fremur er fundur þessi haldinn á þeim tíma árs, um fardagaleytið, sem getur um í 7. gr. reglugerðarinnar. Ennfremur segir svo í fundargerð þessari: „Að fundi settum skýrði sýslumaðurinn frá aðgerð- um félagsins, og einkum hversu mjög Hr. kaupmaður P. Bryde hefði með því að útvega margar góðar bækur til bóka- safnsins, stutt að stofnun félagsins, svo skýrði hann og frá að Herra alþingismað- ur skjalavörður Jón Sigurðsson í Kaup- mannahöfn, riddari Dannebrogsorðunn- ar, hefði mikillega stutt að stofnun fé- lagsins með því að senda því gefins tölu- vert af bókum. Ennfremur var lagður fram reikningur yfir tekjur og útgjöld félagsins til 6. júní 1863“. Þar segir ennfremur: „Því næst stakk sýslumaðurinn upp á því við þá félagsmenn, sem við voru staddir, að Herra Jón Sigurðsson væri fyrir velvild þá, er hann hefði sýnt fé- laginu, kosinn til heiðursjorseta þess, og samþykktu félagsmenn það í einu hljóði. Einnig var í einu hljóði samþykkt sú uppástunga, að Herra kaupmaður P. Bryde væri svo sem bezti velgjörðarmað- ur félagsins kosinn til heiðursfélaga“. Þótt margt fleira mætti segja um fé- lag þetta, svo sem vistarverur þess og Þórs- hvöt AFMÆLISLJÓÐ Meðan orka í æsku býr, eflist Þór, vaxi Þór, þegar dreng’ að þrekraun knýr þrá að verða stór. Hvar sem dirfska, hreysti og afl — eflist Þór, vaxi Þór — Heyja með drenglund örðugt tafl, sigri sveit frá Þór! Daglegt stríð og stritsins raun styrki Þór, auki Þór. Garpsins þjálfun, gullin laun gjaldi land og sjór. Hvenœr sem örðugt œvistarf, — Heill þér Þór, heill þér Þór, einbeitts vilja og manntaks þarf hjálpi hönd úr Þór. Loftur Guðmundsson. hrakninga fram að síðustu árum, hús- byggingu fyrir félagið eða bókasafnið, þá læt ég hér staðar numið að þessu sinni. J. A. G. 14 HEIMAKLETTUR

x

Heimaklettur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimaklettur
https://timarit.is/publication/1873

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.