Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 18

Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 18
JES A. GÍSLASON: „BÓKASAFN VESTMANNAEYJA LESTRARFÉLAGS11 Eitt af þeim menningarmálum fyrir Vestmannaeyjar, sem þeir Bjarni E. Magnússon sýslum. (sýslum. í Eyjum í 11 ár, frá 1861—1872) og séra Brynjólf- ur Jónsson, prestur í Vestmannaeyjum frá 1852—1884, áttu frumkvæðið að, var stofnun „Lestrarfélags Vestmannaeyja“, sem þeir nefndu svo í ávarpi og reglu- gerð fyrir það félag, og sem sent var út til almennings hér í Eyjum í júnímánuði 1862. Þetta lestrarfélag er fyrsti vísir þess bókasafns, sem nú er hér í Eyjum, og er því á þessu ári orðið 81 árs. Bóka- safn þetta átti við fráfall séra Brynjólfs Jónssonar (1884) „600 bindi af fróð- legum og nytsömum bókum“, eftir því, sem segir í sóknarlýsingu hans, en liann var forstöðumaður safnsins hin síðustu ár ævi sinnar. Blómgaðist það í hönd- um hans, enda lét hann sér mjög annt um það, eins og önnur menningarmál, sem hann beitti sér fyrir hér í Eyjum. Þetta er allgóður bókakostur, 600 bindi, á þeim tímum, eða nálægt því lj/2 bindi á hvern mann hér á Eyju, miðað við fólksfjölda Eyjanna þá. Avarp það og reglugerð þá, sem fyrr um getur, rakst ég nýlega á innan í gamalli bókaskrá safnsins. Það er frum- ritið og því allmerkilegt skjal. Skjal þetta, sem er í heilarkarformi, blátt að lit, er farið að verða ellilegt og nokkuð slitið, en vel læsilegt, er nú 81 árs. Eg hef hvergi séð það innfært í gerðabæk- ur safnsins, en af því að fátt segir af 12 einum, sérstaklega ef hann er orðinn lú- inn og gamall, þá fannst mér rétt að birta það einhversstaðar á prenti, bæði til fróðleiks og til geymslu, ef skjalið sjálft glataðist, og fannst réttast, að þetta fyrsta skjal lestrarsafnsins birtist í hinu fyrsta tímariti Eyjanna, sem nú er í ráði að stofna hér, og sem ætlað er að hefja göngu sína um næstu áramót. Skjal þetta fer hér á eftir og er svo- hljóðandi: „Hverjum manni má kunnugt vera, hve mjög almenn menntan og þekking styður að því að efla heill og velferð lýða og landa, og má með sanni álítast sem grundvöllurinn undir andlegum og líkamlegum framförum hvers einstaks manns og þjóðfélagsins yfir höfuð; því upplýsingin og þekkingin hvetur menn til dáðar og dugnaðar og til þess að neyta krapta sinna, sér og öðrum til gagns og nota, svo með almennri upp- lýsingu fylgir allajafna almenn velferð, dáð og dugur, en með vanþekkingu ó- dugnaður og eymdarskapur. Af þessum ástæðum hefur oss undir- skrifuðum, er fúslega viljum stuðla til þess að efla og glæða almenna og nyt- sama þekkingu meðal Eyjabúa, sem vér, eins og nú er getið, álítum svo áríðandi, væri mjög nauðsynlegt að bókasafn yrði stofnsett hér á Vestmannaeyjum, innihaldandi ýmsar fróðlegar og lær- dómsríkar bækur á íslenzku og dönsku HEIMAKLETTUR

x

Heimaklettur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimaklettur
https://timarit.is/publication/1873

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.