Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 12

Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 12
inni, þá var hann alltaf mjög glaður. Þyngst féll henni, hversu móðir hennar grét sárt. Til allrar hamingju vissi hún ekki, hverju fram fór úti á eyjunni. Is- lendingarnir, Vestmannaeyingarnir, höfðu flúið á fjöll. Þeir hlupu í hina mörgu hella í Eyjunni og upp á kletta- hillur, sem vænta hefði mátt, að væru ókleifar. Meðal flóttamannanna var hinn Eyjapresturinn, Jón Þorsteinsson, sem var alkunnugt sálmaskáld. Hann hafði með fjölskyldu sinni leitað felu- staðar í helli einum, og sett vörð á hamrabrúnina fyrir ofan. Þessi varð- maður var skotinn af sjóræningjunum og blóðið úr honum rann ofan í hellinn til prestsins. Þetta varð til þess, að hann gekk fram, eftir að hann hafði haft yfir sér og fjölskyldu sinni til huggunar ýmsa ritningarstaði. Tvær konur, sem leitað höfðu hælis í nærliggjandi helli og ræn- ingjarnir urðu ekki varir við, hafa sagt frá því, að presturinn hafi gengið á móti ræningjunum, þegar þeir þustu að. Þorsteinn var þar fremstur í flokki og hæddist mest að klerki. Tyrki hjó hann með sínu íbogna sverði. Hann varð að höggva hvað eftir annað áður en prest- urinn dó, og sá herrans maður gjörði það með þessum orðum: „Jesús, herra minn, meðtaktu minn anda“. Kona hans og börn voru hrakin til Dönskuhúsa til hinna fanganna. Sjóræningjarnir þvinguðu fangana með svipuhöggum til þess að róa félaga sína um borð í sjóræningjaskipin, og því næst ránsfenginn. A skipsfjöl var séra Olafur Egilsson húðstrýktur. Þáð átti að neyða hann til að ljósta upp, hvar kirkjan og bæjarbúar hefðu falið verðmæti sín. En hann vissi ekkert um það. eða lét í veðri vaka, að hann vissi ekkert, þoldi kvalirnar og öðlaðist þann- ig virðingu sjóræningjanna. Krabbinn var gjörður haffær og fylltur föngum undir eftirliti liðmargs sjóræningja- flokks. Um kvöldið var borinn eldur að Dönskuhúsum og Landakirkju. Og að morgni, meðan kirkjan stóð enn í björtu báli, skutu sjóræningjarnir níu kveðju- skotum og yfirgáfu Vestmannaeyjar. Þeir fluttu með sér 242 fanga, og þeir, sem eftir lifðu á Heimaey, jörðuðu 34 myrta menn. Þegar skipin voru komin langt til hafs. urðu umskipti. Þá var farið betur með fangana. Að vísu var nokkrum gamal- mennum, sem talin voru verðlítil sem verkamenn, varpað fyrir bórð, en hinir fangarnir — þrælarnir — sem með vissu yrði keypt lausn, sættu yfir höfuð góðri meðferð. Það kom fyrir, að sjóræningj- arnir sinntu börnunum og léku sér við þau, til þess að fá þau til að brosa. Það er alltaf einhver taug í mönnum, þrátt fyrir vonzku þeirra. Þó ekki væri öðru til að dreifa, reið þó á að koma farmin- um heilum í höfn, og eitthvað urðu menn að skemmta sér við á leiðinni. Þegar komið var alllangt suður á bóg- inn bar það við, að sjóræningjaflotinn varð á vegi danskra herskipa, sem send höfðu verið af stað frá Danmörku und- ir stjórn Mauritz Printz, strax og fregn- in um árásina barst þangað, til þess að varna óvinunum undankomu og hreinsa höfin af sjóræningjum og öðrum óþjóða- lýð. Skamma stund blossaði upp von- in hjá hinum mörgu föngum, en þeir urðu fyrir sárustu vonbrigðum. Fang- arnir voru allir reknir undir þiljur, öll segl dregin að hún, og hin þungu dönsku herskip drógust aftur úr hinum hrað- skreiðu, léttbyggðu sjóræningjaskipum. Tyrkirnir voru sérstaklega heppnir. Þeir voru undir góðri stjórn og ákaflega 6 HEIMAKLE TTUR

x

Heimaklettur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimaklettur
https://timarit.is/publication/1873

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.