Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 35

Heimaklettur - 01.12.1943, Blaðsíða 35
til 11. ágúst létust níu manns hér í bænum af völdum áfengiseitrunar. 1./9. Jóhanni Gunnari Olafssyni veitt bæjarfó- getaembættið á Isafirði og sýslumannsembætti ísafjarðarsýslu frá 1. okt. 9./9. íþróttafélagið I>ór 30 ára. I þessum mánuði var keyptur hingað af bæjar- sjóði fyrsti loftþrýstiborinn, sem hingað hefur komið. Verð um 30.000.00. SÍLDVEIÐI. Aflahæstu skip frá Vestmannaeyjum á síldveið- unum s.l. sumar voru: Alsey, skipstjóri Óskar Gíslason, 14614 mál, og Kári og Sjöfn (tveir um nót), skipstjóri Sigurður Bjarnason, fiskuðu 13775 mál í bræðslu, 660 tunnur í salt. 16./10. Hófst námskeið fyrir verkafólk Hrað- frystistöðvar Vestmannaeyja, þar sem kenndar eru þessar námsgreinar: íslenzka, saga, heilsufræði og enska. Bækur allar og kennslu lætur Hrað- frystistöðin fólkinu í té að kostnaðarlausu. Senni- lega er þetta fyrsta verkafólksnámskeið á landi hér, sem atvinnufyrirtæki rekur á eigin kostnað. Auk þessa hefur Hraðfrystistöðin úrvals bókasafn til afnota fyrir starfsfólkið og eru keyptar þangað allar nýjustu og beztu bækur um leið og þær koma á bókamarkaðinn. I bókasat'ninu eru nú um 4000 bindi. Eigandi og forstjóri Hraðfrystistöðvar- innar er Einar Sigurðsson. NÝSMÍÐI SKIPA. Þann 6. apríl rann af stokkunum hjá Dráttar- braut Vestmannaeyja vélskipið Von 11, að stærð 62 br. smálestir með 150 ha. Lister Diesel vél. Einkennisbókstafir eru VE 113. Yfirsmíði alla ann- aðist Gunnar M. Jónsson skipasmíðameistari. Eig- endur eru bræðurnir Guðmundur, sem er skip- stjóri. Jón og Guðlaugur Vigfússynir frá Iíolti. SKIPASMÍÐASTÖÐ VESTMANNAEYJA. A þessu ári hafa runnið af stokkunum hjá Skipasmíðastöð Vestmannaeyja fjögur ný fiskiskip. 26. febr. \'.b. Haddi VE 50, 7 rúmlestir að stærð. Eigendur Filipus Árnason og Olafur Ólafsson. 6. marz v.b. Týr VE 315, um 36 smól. með 116 ha. vél. Eigandi Fram h.f. 3. apríl v.b. Jökull VE 163 um 48 smál. með 144 ha. vél. Eigendur Lárus og Sveinn Ársælssynir og Steingrímur og Kristján Björnssynir. Steingrímur er skipstjóri. 27. apríl v.b. Friðrik Jónsson <VE 115 um 48 smól. með 150 ha. vél. Eigendur Ármann og Kristinn Frið- rikssynir. Ármann er skipstjóri. Kostnaðarverð þessara skipa er um 1% milj. króna. Auk þessa er nú langt komið smíði um 60 smál. skips hjá þessu sama fyrirtæki. Þessi mikilvirka skipasmiðastöð er enn í •bernsku, eða aðeins tveggja ára. En þrátt fyrir stuttan starfsferil eru afköstin mikil. Auk hinna traustu og fallegu skipa, sem hér hafa verið nefnd, hefur stöðin smíðað stóran og mikinn hafnarfleka ca. 35 til 40 smál. Skipasmíðastöðin hefur dregið á land 74 skip. og alimörg oftar en einu sinni, svo að alls hefur hún framkvæmt 130 uppdrætti skipa af stærðinni 5 til 150 smál., og annast stærri og smærri við- gerðir á þeim. Að staðaldri hafa unnið 25 til 30 menn hjá Skipasmíðastöð Vestmannaeyja þessi tvö ár, sem hún hefur starfað. Yfirsmiður hjá fyrirtækinu er Runólfur Jóhannsson og annast hann alla teikningu á bátum og skipum. Skipa- smíðastöðin er nú að byggja stórhýsi fyrir hina umfangsmiklu starfsemi sína. Eigandi þessa fyrir- tækis er Ársæll Sveinsson útvegsbóndi og hefur hér sem víðar gætt framtakssemi hans og dugn- aðar. STÓRT SKIP. Helgi Benediktsson lét hefja á þessu ári smíði hins stærsta skips, sem hér hefur verið lagður kjölur að, og mun það verða yfir tvö hundruð rúmlestir. Yfirsmiður er Brynjólfur Einarsson, BYGGINGAR. Allmikið hefur verið hér um nýbyggingu húsa á þessu ári, bæði til xbúðar og iðnaðar. Atta íbúðarhús munu hafa verið fullgerð og önnur ótta eru í smíðum, auk þessa var byggð bifreiðastöð og eitt verzlunarhús. Vestast við Strandveginn eru þrjú stórhýsi í smíðum, vestast er smíðastöð sem Skipasmíðastöð Vestmannaeyja er að láta byggja, þá kemur stórt og veglegt hús, sem Vél- smiðjan Magni h.f. er að láta reisa og mun það að mestu fullgert. Austast er hús, sem Dráttar- braut Vestmannayja h.t’. hefur látið byggja fyrir iðnað sinn. Þarna vestast við Strandveginn er jxví að myndast veglegt iðnaðarhverfi, sem nýtur sín vel við nýsteyptan Strandveginn og verður prýði bæjarins, samboðið hinum þýðingarmikla rekstri, sem þarna fer fram. Þá er mikil viðaukabygging í smíðum austan vert við Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Hrað- frystistöðin er þegar orðin ein stærsta bygging bæjarins og samkvæmt teikningu á hún að stækka um þíiðjung ennþá. Er lítil ástæða að ætla ann- að, en á næstu árum komist byggingin í það horf, er teikningin sýnir, því svo mn heita. að stöðug HEIMAKLETTUR 27

x

Heimaklettur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimaklettur
https://timarit.is/publication/1873

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.