Heimaklettur - 01.12.1943, Qupperneq 8
JÓL ( HEIMAEY
(SJÓRÆNINGJAR FRÁ ALGIER í VESTMANNAEJUM ÁRIÐ 1627).
EFTIR KAY LARSEN.
„Mamma, koma jólin ekki bráðum
aftur?“ hvíslaði lítil stúlka.
„Eg er búin að segja þér svo oft, Þóra,
að jólin séu aðeins einu sinni á ári“,
svaraði móðir hennar af nokkurri óþol-
inmæði.
„Þau eru svo yndisleg, og pabbi er
Iíka prestur“.
„Já, en hann getur ekki breytt því,
vina mín litla. Þú verður að vera góð
og bíða“.
Litla stúlkan varð að bíða í tíu löng
og erfið ár, og þá hafði hún gleymt,
hvað jól voru. Fáar litlar stúlkur hafa
reynt jafn mikið og þungbært mótlæti
og Þóra litla.
Mæðgurnar gengu út fyrir prestsetrið
á Ofanleiti—og biðu pabba. Hann hafðí
farið til bæjarins til þess að fá fréttir af
hinum ískyggilega orðrómi, sem gekk
um það, að Tyrkir hefðu ráðizt á land
víða á íslandi og rænt, myrt og ruplað.
Barnið vissi ekkert um erindi föður
síns, en móðir hennar bjóst við verstu
fréttum. Hún hafði verið of hamingju-
söm og ekki kunnað að meta hamingju
sína, ekki verið nógu þakklát, en stund-
um metið sig og sína nánustu lítils. Og
nú náði refsingin til hennar og skyldu-
liðs hennar. Þarna kom presturinn fölur
og hokinn. Hræðsla lamaði vesalings
konuna og barnið hjúfraði sig að henni
í ósjálfráðum ótta. Þögull gekk hinn
virðulegi Ólafur Egilsson til þeirra. Al-
varlegur á svip lagði hann hön'dina á
öxl konu sinnar og sagði aðeins: „Orð-
rómurinn var réttur. Við skulum fara
inn, og þegar börnin eru komin til
svefns, þá kemur þú inn til mín“. Það
Ieið löng stund, þangað til börnin sofn-
uðu. Þau urðu vör við ótta móðurinnar.
Og þegar hún gekk kvíðafull inn í her-
bergi prestsins, sá hún mann sinn sitja
beygðan yfir borðið, auðum höndum.
Ræðunni, sem hann hafði verið byrjaður
á, hafði hann ýtt til hliðar. Hann sagði
henni ógnartíðindin. . . Tyrkir voru
komnir til íslands á mörgum skipum.
Ræningjarnir höfðu ætt um Grindavík
eins og trylltir djöflar og farið alla leið
vestur að Bessastöðum. Þeir höfðu einn-
ig komið á Berufjörð fyrir austan. Þar
höfðu þeir myrt og brennt og rænt mörg-
um hundruðum manna. Hann gat ekki
fengið af sér að segja hinni skelfdu konu
sinni öll ógnartíðindin. Það var sagt, að
hinir níðangurslegu sjóræningjar, djöfl-
ar í mannsmynd, hefðu klær í staðinn
fyrir neglur. Eldur logaði af sjónum
þeirra, hnífar og járngaddar yxu á
brjósti þeirra og limum. Það yrði skelfi-
legt, ef þessi ógn riði einnig yfir Vest-
mannaeyjar. Presturinn reyndi að
hugga konu sína, sem var komin að yf-
2
HEIMAKLETTUR