Heimaklettur - 01.12.1943, Page 15
EINAR GUÐMUNDSSON:
KAFHELLIR
Enn er ýmsum í minni, er Kristj-
án X. kom til Vestmannaeyja fyrir
nokkrum árum og líkti þeim við
Capri.1 Vestmannaeyjar höfðu fagn-
að kóngi vel, en látlaust, með því að
sigla fiskiflota sínum, um 50 vélbát-
um, út Víkina til móts við hann. En
kóngurinn sat enga veizlu hér, drakk
hér ekkerf þakkarfull, svo að þessi
ummæli hans voru ekki neitt skála-
ræðuglamur. — Kóngurinn á bústað
við Miðjarðarhaf, hefur gist Capri,
og vafalaust séð hinar fegurstu eyj-
ar í heimi. Það má fullyrða, að kóng-
urinn hafi margt til samanburðar,
þessi samlíking hans sé nærri sanni.
Óvænt hrós var hún fyrir Vest-
mannaeyinga. Ef kóngurinn hefði séð
Kafhelli í Vestmannaeyjum, sem er
talinn næstfegursti hellir Evrópu,
litlu síðri en Grotta azzurra (Bláhell-
ir) á Capri, hefðu þessi orð verið
enn meira sannmæli honum í munni.
Heimaey og Capri eru svipaðar að
ýmsu leyti. Báðar eru sæbrattar, við
báðar eru lélegar hafnir. Vatnsskort-
ur er á Capri eins og í Vestmanna-
eyjum, neyzluvatn að mestu rign-
ingarvatn þar sem hér. Capribúar
hætta stundum húsasteypu sökum
vatnsskorts. En Vestmanhaeyingar
hafa komizt upp á að nota sjó í
1) Capri þýðir: Hafursey.
óvandaðri húsasteypu, er vatn þrýt-
ur, enda er sjórinn eigi eins saltur
hér nyrðra. Sjóböð þykja ágæt á
Capri. Og við sandbrekkuna í skjóli
Heimakletts, gegnt sunnansól, er
bezti sjóbaðstaður á íslandi. En það
skilur, að á Capri er svo hlýtt, að sjó-
böð geta verið notaleg á vetrum.
Heimaey er um 16 ferkílómetra —
eða að kalla 5 ferkílómetrum stærri
en Capri. Gróðurfar og atvinnuhætt-
ir eru að vonum ólíkir á eyjunum.
Þó stunda Capribúar nokkuð fiski-
og fuglaveiðar. Einn farfugl þeirra,
lynghænan, er veidd af álíka miklu
kappi og farfugl einn í Vestmanna-
eyjum, lundinn.
Mestu náttúruundur á Capri eru
hellar og drangar. Hið sama er að
segja um Vestmannaeyjar. Capri er
fjölsóttur ferðamannastaður, einkum
vegna Bláhellis. — Fáir ferðalangar
koma hins vegar til Vestmannaeyja
að skoða Kafhelli. Ósjór er oft nyrzt
í Atlantshafi, sólskin stopult, og sjáv-
arfalla gætir mjög. En við Capri
er sjaldan stórbrim, þar er sólríkt,
og flóðs og fjöru gætir lítt eða ekki.
Hins vegar verður helzt að sæta sjáv-
arföllum til að skoða Kafhelli. Og
sjór þarf að vera dauður og sólskin,
eigi fegurð hans að njóta sín að fullu.
Kafhellir er í úteyjunni Hænu. Hún
er syðst fjögurra svonefndra Smá-
HEIM AKLETTUR
9