Heimaklettur - 01.12.1943, Page 17
Það var hálfíallið að. Gæfa skreið
hægt inn í Kafhelli. Siglutré voru
eigi uppi. En svo hátt var til lofts,
allt frá munna að hellisstafni, að í
lágsævi hefði ekki þurft að fella
siglutrén á Gæfu, til þess að hún
gæti rennt inn.
Sjórinn var dumbrauður með hell-
isveggjunum. Mun sá litur stafa með-
al annars af smávöxnum, litsterkum
þaragróðri og kóröllum, er vaxa svo
hátt á berginu, sem flæður nær. —-
Fjær veggjunum var sjórinn ýmist
gulur, grænn eða blár og ótal lit-
brigði þar á milli. Birtan barst bæði
inn um munnann og upp gegnum
sjóinn um rauf móti norðvestri. Á
háflóði er raufin alveg eða því nær
undir sjávarmáli. Kvöldgeislarnir
skinu gegnum hálflokaða raufina,
brotnuðu í sjónum í gólfinu og ollu
flestum litbrigðunum.
Andartak flaug mér í hug, að það
væri því nær helgibrigði, að gára sjó-
inn í hellinum, — engu var líkara
en við hefðum stolizt í þrettánda
herbergið dularfulla, sem sagt er frá
í ævintýri, að María mey bannaði
jarðarbörnum að forvitnast 1. Eða var
þetta heimkynni regnbogans?
Kafhellir hefur myndazt af brimi.
Hann er stór og nokkuð sporöskju-
lagaður. í lofti hans eru gráleitar
hellur misþykkar, stórkostleg lista-
verk náttúrunnar. Þær sjást bezt úr
skoru syðst í hellinum — þar sem
skuggalegast er, rétt innan við munn-
ann. Fer litur þeirra nokkuð eftir
því, hvort verið hefur brim eða lá-
deyða lengi. Mjög bergmálar í hell-
inum. Á botni hans eru óvenjulega
stór ígulker.
Og litirnir eru óteljandi, einkum í
Því miður er ekki hægt að birta mynd
af Kafhelli að þessu sinni. Þessi mynd er
aí Klettshelli, sem er talinn svipur hjá
sjón Kafhellis.
morgunsól eða kvöldsól. í dumbungi
er hins vegar skuggalegt í hellinum
og litskrúð ekkert. —-------
í Kafhelli eru fleiri litbrigði en í
Bláhelli á Capri, þar sem allt er ein-
ungis blátt. Má vera, að Kafhellir sé
eins fallegur og Bláhellir, — en
skorti frægðina eina við hann. —
Munni Bláhellis er svo þröngur, að
ekki er unnt að róa inn í hann nema
á kænu, og verða menn að lúta til að
reka sig ekki upp undir. En í Kaf-
helli væri hægt að fara á svo stóru
skipi, að halda mætti dansleik á þil-
farinu.
í útsunnanólögum, er Kafhellir
fyllist af sjó, þeytist loft og brim-
reykur út með slíku ógnarafli, að lík-
ist sprengingu. Af Þeim brimreyk
mun hellirinn draga nafn.
Á Heimaey eru ýmsir stórir og ein-
kennilegir sjávarhellar, svo sem
Klettshellir, Æðarhellir, Teistuhellir,
Fjósin og Litlahöfðahellir. — Þeir
leggja hver sinn skerf til þess að
gera náttúrufegurð stórbrotna í Vest-
mannaeyjum, en eru þó svipur hjá
sjón Kafhellis í úteyjunni Hænu.
HEIMAKLETTUR
11