Heimaklettur - 01.12.1943, Síða 21
IÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR 30 ÁRA
Sumarið 1913 komu 18 ungir menn
sér saman um að stofna nýtt íþrótta-
félag hér í Vestmannaeyjum. Mun
það fyrst og fremst hafa vakað fyr-
ir þessum ungu mönnum, að hleypa
nýju lífi og auknum krafti í íþrótta-
líf bæjarins og auka fjölbreytni þess,
enda var það knýjandi nauðsyn, þar
sem aðeins eitt félag var hér starf-
andi þá, sem lét sig nokkuð varða
íþróttir, og þó aðeins éina grein
þeirra, það er knattspyrnuna. Félag
þetta var knattspyrnufélag Vest-
mannaeyja, og á stefnuskrá þess var
aðeins knattspyrna. Má því nærri
geta, að ekki hefur verið vanþörf á
að koma á fót öðru félagi, til þess að
auka kapp og áhuga ungra manna á
þessu sviði.
Hinn 9. september 1913, sem ætíð
verður talinn merkisdagur í sögu í-
þróttahreyfingarinnar í Vestmanna-
eyjum,'— völdu þessir ungu menn til
að koma saman í þinghúsinu hér í
Eyjum og stofna íþróttafélag með
víðtækara starfssviði en áður þekkt-
ist hér í bæ.
Á fundinum mættu 16 menn, auk
Guðmundar Sigurjónssonar, sem þá
var sundkennari hér. Var Guðmund-
ur mikill hvatamaður þessarar félags-
stofnunar. Sjö tillögur komu fram
um heiti á þessu félagi, sem nú var
í fæðingu. Nafnið Þór bar þæstan
hlut frá borði, og þar með var 1-
þróttafélagið Þór til orðið. Þegar
búið var að velja félaginu heiti,
HEIMAKLETTUR
voru lögð fram lög, er félagið skyldi
byggja starfsemi sína á. Þau voru
í tíu aðalgreinum, og ber önnur grein
félagslaganna gleggst merki um til-
gang þann, sem vakti fyrir hinum
ungu mönnum með félagsstofnun-
inni, en hún er þannig:
„Tilgangur félagsins er að iðka
alls konar íþróttir og glæða áhuga
manna á þeim“. Og er það ekki of-
mælt, að þeim tilgangi hefur fé-
lagið alla tíð dyggilega þjónað og
árangurinn orðið glæsilegri en nokk-
urn þeirra stórhuga ungu manna, er
að félaginu stóðu, mun hafa látið
sig dreyma um. Fyrstu stjórn fé-
lagsins skipuðu þessir menn: Ge-
org Gíslason formaður, Haraldur Ei-
ríkisson féhirðir og Sigurður Jóns-
son ritari.
Starfsemi félagsins byrjar þegar
af fullum krafti. Á þriðja degi frá
stofnfundi, er haldinn annar fund-
ur og þar ákveðið, að senda mann
til Reykjavíkur til íþróttanáms, og
skyldi hann, er heim kæmi, veita fé-
lögum í Þór tilsögn og aðstoð við
glímu og íþróttaæfingar. Til þessar-
ar ferðar var valinn Haraldur Ei-
ríkisson, núverandi rafvirkjameist-
ari hér 1 Eyjum. Eftir heimkomu
Haraldar byrja svo íþróttaæfingar,
aðallega íslenzk glíma framan af, en
á næsta sumri verður starfið fjöl-
breyttara. Þá er iðkuð knattspyrna,
og rekur nú hvað annað, frjálsar í-
þróttir, sund og leikfimisæfingar með
15