Heimaklettur - 01.12.1943, Page 22
haustinu, og má svo að orði komast,
að Þór hafi verið í stöðugri sókn
á sviði íþrótta og líkamsmenning-
ar frá upphafi.
Árið 1929 er kvennadeild Þórs
stofnuð, og hefur hún síðan iðkað
handknattleik, sund og leikfimi. Það
þarf vart að taka það fram, að Þór
hefur tekið þátt í öllum kappleikj-
um og íþróttamótum hér frá upp-
hafi vega sinna og séð um undir-
búning fjölda þeirra. Einnig sent í-
þrótta- og knattspyrnuflokka víðs
vegar út um land, og hefur ávallt
átt á að skipa hraustum og dugandi
drengjum, bæði í knattspyrnu og
öðrum íþróttum, sem haldið hafa
fána félagsins með heiðri öll þau ár,
sem það hefur starfað.
Þór hefur átt dugandi forstöðu-
mönnum á að skipa, og ber þar hæst
nöfn þeirra Georgs Gíslasonar, sem
var formaður félagsins í 16 ár og
Jóns Ólafssonar, sem stjórnaði fé-
laginu um tíu ára skeið. Er ekki
ósennilegt, að einmitt sé það því að
þakka, með hve mikilli festu og ein-
urð allt starf Þórs hefur verið fram-
kvæmt, og félagið hafi náð tilgangí
sínum í ríkara mæli en ella, fyrir
dugandi forustu fárra manna, enda
á Þór sennilega að miklu leyti þessum
mönnum meira að þakka fyrir störf
þeirra en nokkrum öðrum, þó að Þór
hafi átt fjölmarga aðra áhugamenn,
sem hafa verið reiðubúnir að vinna
fyrir félagið, hvort heldur er í harðri
keppni eða að öðru, sem félags-
starfinu hefur verið nauðsynlegt. Nú
eru félagar í Þór á fimmta hundrað,
og formaður þess er einn glæsilegasti
íþróttamaður Vestmannaeyja, Ing-
ólfur Arnarson. íþróttafélagið Þór
hefur unnið ómetanlegt starf í þágu
hreysti og líkamsræktar Vestmanna-
eyinga. Það starf verður aldrei met-
ið til fjár, en ef Eyjarnar, sem við
byggjum, mættu mæla, mundu þær
þakka Þór það hraustra drengja val,
sem hann hefur aukið afli og þor
og gert hraustari við sín daglegu
störf, hvort sem er á sjó eða landi,
en það er sú dýrmætasta gjöf, sem
nokkurt félag færir byggðarlagi sínu.
Þetta er sú uppskera, sem þeir 16
ungu menn, sem stofnuðu Þór, sáðu
til, og Eyjarnar hafa notið síðan.
Þökk sé þeim fyrir.
Á afmælisfagnaði Þórs í tilefni
þrjátíu ára starfsferils félagsins, sem
haldinn var 30. október s. 1. í Sam-
komuhúsi Vestmannaeyja, var fjöl-
menni saman komið. Húsið var sér-
staklega vel skreytt og undirbúning-
ur allur hinn prýðilegasti. Félaginu
barst fjöldi heillaskeyta frá íþrótta-
félögum og einstaklingum víðsvegar
um land, þar á meðal svohljóðandi
skeyti frá Karli Vilmundarsyni:
„Þú leiðir þrótt til landsins barna
þú. lyftir fána í hæstu stöng,
um aldir glæddu eldinn þarna,
þín ævi verði björt og löng.
Þá gaf Georg Gíslason kaupmaður
Þór veglegan bikar úr silfri með þeim
ummælum, að hann skyldi vera far-
andgripur innan félagsins, og hand-
hafi hans hvert ár skyldi vera sá fé-
lagsmaður, sem mestum árangri næði
í frjálsum íþróttum. Þessum bikar
fylgdi annar minni, nákvæm eftir-
Frh. á bls. 25.