Heimaklettur - 01.12.1943, Page 31
Landíerðirnar þekkja allir; þær eru
bæði stopular og hættulegar, enda
hafa oft orðið slys í slíkum ferðum.
Þetta, sem hér hefur verið sagt, eru
aðeins dæmi um það, hve bágbornar
samgöngurnar eru við Eyjar. Því vit-
anlega leggur maður ekki upp í slíkar
ferðir og hér að framan er lýst, nema
í neyð.
Næst virðist liggja, að Eyjaskeggj-
j ar eignist sitt eigið skip til mann-
flutninga — að minnsta kosti milli
Reykjavíkur og Vestmannaeyja.
Hafa Eyjaskeggjar í annað eins
ráðizt. Má þar til nefna hafnargerð-
ana, sæsíminn milli lands og Eyja,
bjorgunarskipið Þór I, og margt
annað.
Þess ber þó að gæta, að ekki er
allt fengið, þótt skip fengist til mann-
flutninga, en þeir eru miklir milli
Vestmannaeyja og Reykjavíkur, t. d.
er mér tjáð, að Stokkseyrarleiðina
eina hafi í sumar farið um 4000 far-
þegar.
Til þess að fólksflutningar milli.
þessara staða komist í það horf, sem
þeir þurfa og eiga að vera í, þarf
flugvél, og það frekar tvær en eina,
frekar þrjár en tvær, o. s. frv.
Flugvélin þyrfti ekki endilega að
fljúga milli Vestm.eyja og Reykja-
víkur — nægja mundi, ef hún flygi
milli Lands og Eyja, þannig, að
Eyjaskeggjar næðu í bílasamband við
Reykjavík með því að fara með flug-
vélinni hluta leiðarinnar. Væri þeg-
ar mikið fengið, ef þetta tækist, en
bezt væri beint samband, og án efa
hin endanlega lausn á málinu.
Flugvélin gæti farið margar ferð-
ir á dag og afkastað ótrúlega miklu,
4
bæði hvað snerti farþegaflutning og
póst.
Blaðið leggur því til, að Eyja-
skeggjar taki nú sem oftar höndum
saman og stofni með sér félag, t. d.
hlutafélag, til flugvélakaupa, nú þeg-
ar, ef unnt er, ella þegar að afloknu
stríðinu.
Einnig væri æskilegt, að Eyja-
skeggjar sendu og styrktu ungan
mann héðan til flugnáms. Ýmislegt
er sem mælir með því, að að flug-
maður á flugleið til og frá Vest-
mannaeyjum sé Eyjamaður, og þarf
ekki að gera nánari grein fyrir því
hér.
Blaðið heitir málefni þessu stuðn-
ingi sínum, og mun í framtíðinni
hafa opið rúm fyrir greinar um
þessi mál.
F. G. J.
Ameríkumenn eru brjóstumkennanlegir að mér
finnst. Þeir voga öllu og sýna hina mestu hreysti
og hetjudug' í æfintýrum efnisheimsins, en vilja
helzt kaupa fyrirfram ábyrgð á öllum sínum
andlegu tilraunum.
Mathama Gandhi.
,.I hálfa öld hef ég dreift í kringum mig hugs-
unum mínum í ljóði, bundnu máli, skáldsögum,
heimspeki, sorgarleikjum og söng. Allt hef ég
reynt við mig, en ég finn, að ég hef ekki enn
sagt þúsundasta hlutann af því, sem í mér býr“.
Victor Hugo.
„Minn næsti dagur byrjar næsta morgun. Dauð-
inn er ekki djúp, sem enginn kemst yfir, heldur
alfaravegur. Að kvöldi er hhðum hans lokað og
að morgni opnuð á ný, þegar dagur eilífðarinnar
rís“.
Victor Hugo.
Snillingurinn (genius) er 1% innblástur og 99%
sviti.
Thomas A. Edison.
HEIMAKLETTUR
23