Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1963, Blaðsíða 10
8
4. gr. Forstjóri annast stjórn stofnunarinnar samkvæmt lögum þessum og reglu-
gerðum, sem settar eru. Hann ræður alla starfsmenn stofnunarinnar, sem ekki eru
skipaðir af ráðherra.
Deildarstjórar annast venjulega afgreiðslu mála, hver fyrir sína deild. Hvers konar
nýbreytni og afbrigði frá venju skal bera undir forstjóra.
5. gr. Sameinað Alþingi kýs á fyrsta þingi eftir hverjar almennar alþingiskosningar
fimm menn i tryggingaráð og aðra fimm til vara. Ráðherra skipar formann og vara-
formann tryggingaráðs úr hópi hinna kjörnu aðalmanna.
Ráðherra ákveður þóknun tryggingaráðsmanna.
6. gr. Tryggingaráð skal hafa eftirlit með fjárhag, rekstri og starfsemi Trygginga-
stofnunar ríkisins og gæta þess, að hún starfi í samræmi við lög og reglugerðir á hverj-
um tíma. Skal endurskoðunardeild starfa við stofnunina undir eftirliti þess.
Rísi ágreiningur um bætur, leggur tryggingaráð úrskurð á málið.
Leita skal samþykkis tryggingaráðs á:
a. Hinni árlegu fjárhagsáætlun stofnunarinnar.
b. Ársreikningum stofnunarinnar.
c. Ákvörðunum um iðgjaldaupphæðir.
d. Ollum heildarsamningum við lækna, sjúkrahús og önnur slík dvalarheimili.
e. Meginreglum um notkun heimildarákvæða.
f. Ollum lánveidngum og verðbréfakaupum og sölum.
g. Oðrum þeim atriðum, sem lög þessi ákveða.
Þá getur forstjóri og borið önnur mál undir tryggingaráð, ef honum finnst ástæða
til.
7. gr. Vinnuveitendasamband íslands, Alþýðusamband íslands, Stéttarsamband
bænda og Landssamband íslenzkra útvegsmanna skipa hvert unt sig einn mann, sem
hefur rétt til að taka þátt í umræðum tryggingaráðs og gera tillögur, þegar skipt er í
áhættuflokka og ákveðin iðgjöld atvinnurekenda til slysatrygginga. Skal Trygginga-
stofnuninni skylt að láta þeim í té allar upplýsingar, sem nauðsynlegar eru vegna
þessa starfs.
8. gr. Aðalskrifstofur Tryggingastofnunar ríkisins eru í Reykjavík.
Utan Reykjavíkur skulu sýslumenn og bæjarfógetar annast umboðsstörf fyrir Trygg-
ingastofnunina, hver í sínu umdæmi. Þóknun til sýslumanna og bæjarfógeta fyrir
þessi aukastörf skal ákveðin í reglugerð, sem samin sé í samráði við forstjóra Trygg-
ingastofnunarinnar og stjórn Dómarafélags Islands.
Ráðherra ákveður þátttöku Tryggingastofnunariunar í skrifstofukostnaði sýslu-
manna og bæjarfógeta vegna umboðsstarfa þessara.
9. gr. Reikningar Tryggingastofnunar ríkisins fyrir síðastliðið ár skulu jafnan full-
gerðir eigi síðar en 1. júlí ár hvert. Skulu þeir endurskoðaðir á sama hátt og reikning-
ar annarra ríkisstofnana.
Að lokinni endurskoðun og afgreiðslu tryggingaráðs skulu reikningarnir sendir
félagsmálaráðuneytinu, sem síðan lætur birta þá í B-deild Stjórnartíðinda.
Tryggingastofnunin skal í árbók eða með öðrum reglubundnum hætti birta glöggar
upplýsingar um alla starfsemi stofnunarinnar.