Heimili og skóli - 01.04.1963, Side 27
íslands skuli sambærilegar kröfum stú-
dentaprófs menntaskólanna. Þó þannig, að
heimilt sé að láta próf í uppeldis- og
kennslufræðum frá almennu kennaradeild-
inni gilda til stúdentsprófs og fella þá :nið-
ur innan takmarka, sem ákveðið er í reglu-
gerð, annað námsefni, sem því svarar, á
svipaðan hátt og gert er um sérgreinar í
mála- og stærðfræðideildum menntaskól-
anna.
FRAMHALDSDEILD
Framhaldsdeild, sem veiti nemendum
kost á framhaldsmenntun með nokkru kjör-
frelsi, og skulu þeir þá stunda nám í eigi
færri greinum en þrem, og sé ein þeirra að-
algrein. Skal þessu framhaldsnámi ljúka
með prófi og starfandi kennurum heimilt
að leggja stund á einstakar greinar þessa
framhaldsnáms eftir frjálsu vali og ljúka
í þeim tilskildum prófum. Lfndirbúnings-
deild til sérnáms, og skal þar vera um 2
ára nám að ræða, sem búi nemendur undir
kennaranám í sérgreinum, svo sem handa-
vinnu, íþróttum, tónlist, teikningu, hús-
mæðrafræðslu og öðrum uppeldisstörfum,
hvort sem sérnámið fer fram í Kennaraskól-
anum eða annars staðar. Handavinnudeild,
sem veitir sérmenntun í handavinnu karla
og kvenna og sér nemendum fyrir æfingu
í að kenna þær. Ennfremur sjái handa-
vinnudeild nemendum í öðrum deildum
Kennaraskólans fyrir kennslu í handavinnu
og kennsluæfingu í þeirri grein.
Það ber að þakka ríkisstjórninni fyrir
þetta merka frumvarp og nefndinni, sem
samdi það.
Flugmodelsmíði í tómstundaheimili.
HEIMILI OG SKÓLI 47