Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2023, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.02.2023, Blaðsíða 8
8 S K I N FA X I Meðlimir í ungmennaráði UMFÍ sátu tvær norrænar ráðstefnur í byrjun sumars í Danmörku og á Grænlandi Nordisk Ungdomsorganisation (NordUng) eða Nordic Youth Organi- sations eru regnhlífarsamtök fyrir ungmennasamtök, fyrst og fremst fyrir Norðurlöndin en einnig fyrir önnur samtök innan Evrópu sem vilja starfa með Norðurlöndunum. Ungmennaráð UMFÍ er aðildarfélag NordUng og í tengslum við það gátu fjögur ungmenni á vegum ráðsins sótt leið- togavinnustofu NordUng í Kaupmannahöfn í maí. Vinnustofan var í Rödekro í Danmörku dagana 17.–21. maí og fóru utan á vegum UMFÍ þær Embla Líf Hallsdóttir, formaður ungmennaráðs UMFÍ, Halla Margrét Jónsdóttir, varaformaður, sem reyndar er búsett ytra, og þær Hrefna Dís Pálsdóttir og Sara Jóhanna Geirsdóttir Waage, sem eru skemmtanastjórar ungmennaráðs UMFÍ. Í leiðtogavinnustof- unni voru þátttakendur á aldrinum 15–39 ára frá mörgum löndum, langflestir frá Norðurlöndunum en líka frá Úkraínu og Eistlandi. Hópurinn hristur saman „Það var skemmtilegt að fara yfir það hversu margar tegundir af leið- togum eru til og hvers konar leiðtogar við viljum vera,“ segir Embla Líf um fyrsta daginn í leiðtogavinnustofunni í Danmörku. Þar var hópurinn hristur saman svo að allir þátttakendur gætu kynnst betur til að njóta næstu daga betur. Á meðal þess sem var kennt var skilgreining á því hvað leiðtogi er og hvernig það er fyrir fólk að vinna saman í hópi. Þátttakendum var skipt upp í tvo vinnuhópa: Fullorðinsfræðslu (e. Adulthood Academy) og Ungmennaviku (e. Youth Week). Allur full- trúar ungmennaráðs UMFÍ voru í fyrrnefnda hópnum. Hóparnir unnu vel saman og bjuggu meðal annars til bækling, skipulögðu hlaðvarp og komu með hugmyndir fyrir komandi verkefni hjá NordUng. 101 heimilishald Sara Jóhanna var í hópnum sem skipulagði hlaðvarpið og í því ræddu þau um aukin útgjöld og ábyrgð en Embla, Halla og Hrefna unnu að gerð bæklings ásamt þátttakanda frá Úkraínu. Fyrri hluti bæklingsins fjallaði um eitt og annað sem ungt fólk þarf að hafa í huga við heimilis- hald þegar það flytur úr foreldrahúsum, þar á meðal hvernig á að þrífa föt og híbýli, skipuleggja innkaup fyrir vikuna og þess háttar. „Þegar við vorum að búa til bækling fyrir ungmenni um hvernig eigi að þrífa fengum við svo ólíka sýn á hvað fólk vildi, af því að við vorum frá svo mismunandi löndum,“ segir Embla. „Það sem virkar fyrir okkur á Íslandi virkar ekki endilega fyrir aðra, það var svolítið skrýtið og krefj- andi en líka skemmtilegt,“ segir hún. Seinni hluti bæklingsins fjallaði um fjármál, hvað þarf að greiða þegar flutt er að heiman, tryggingar, lán, sparnað og fleira. Verkefnið um fullorðinsfræðsluna er að sögn Emblu langtímaverkefni, sem var sett í salt og verður þróað áfram síðar. „Hlaðvarpið er ekki komið út því að ég held að það eigi eftir að gera fleiri hlaðvarpsþætti. Bæklingurinn er heldur ekki alveg tilbúinn,“ heldur Embla áfram en bætir við að mismunandi bakgrunnur þátttakenda í vinnustofunni hafi skapað góðar umræður fyrir hlaðvarpið. Fullorðinsfræðslan var góð að mati allra og nauðsynleg enda voru þátttakendur allir sammála um að ungu fólki væri ekki kennt nógu vel hvernig lífið er þegar farið er úr föðurhúsum og hvað það þýðir að full- orðnast. „Bæklingurinn getur því verið virkilega gagnlegur ungmennum líka hér á Íslandi og mögulega skemmtilegt verkefni fyrir íslensk ungmenni að þýða bæklinginn þegar hann er orðinn fullklár,“ segir Embla að lokum. Ungmennavika á Grænlandi Áherslur vinnustofunnar í Danmörku, bæði bæklingurinn og fleiri verk- efni, voru í raun undirbúningur fyrir ungmennaviku sem haldin var í Ungmenni í leiðtogavinnu

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.