Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2023, Blaðsíða 32

Skinfaxi - 01.02.2023, Blaðsíða 32
32 S K I N FA X I „Mig langar svo að segja fólkinu mínu í Póllandi frá því að ég hafi hlaup- ið með forsetanum. Það er mjög merkilegt að geta gert það,“ segir Joanna Pietrzyk-Wiszniewska, sem búsett hefur verið í Hnífsdal síðast- liðin níu ár. Þegar hún frétti af Forsetahlaupi UMFÍ lét hún sig hafa það að fara af stað klukkan sjö á laugardagsmorgni til að vera mætt til Pat- reksfjarðar í hlaupið, sem hófst klukkan tíu. Ferðin á milli tekur þrjár klukkustundir. Merkilegt að geta hlaupið með forsetanum Um 70 manns tóku þátt í Forsetahlaupi UMFÍ sem haldið var á Patreksfirði í byrjun september. Þetta var annað skiptið sem hlaupið fór fram. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók fullan þátt í viðburðinum og spjallaði við þátttakendur. Þetta var fyrsta hlaup Joönnu en hún hefur gengið töluvert úti í náttúr- unni í nágrenni Hnífsdals, Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Hún hljóp 2,5 kílómetra með fjölda fólks, sem kom mislangt að, flest frá Patreksfirði og Tálknafirði og Bíldudal en önnur lengra frá, svo sem frá Súðavík og Flateyri. Forseti í meðvindi „Við erum í skýjunum með Forsetahlaupið. Þetta var svo skemmtilegt og gaman hve margir tóku þátt,“ segir Ásgeir Sveinsson, framkvæmda- stjóri Héraðssambandsins Hrafna-Flóka, sem stóð að Forsetahlaupinu með UMFÍ og forsetaembættinu. Um 70 þátttakendur í hlaupinu jafngilda um 10% af íbúum Patreks- fjarðar. Í boði voru þrjár vegalengdir, 1 km hlaup sem margir yngstu þátttakendurnir tóku þátt í, 2,5 km hlaup og 5 km hlaup sem nokkrir reyndari kappar af öllum kynjum og aldri tóku þátt í. Þar á meðal var Ásgeir, sem hljóp seinni hringinn í 5 km spretti Guðna Th. Jóhannes- sonar, forseta Íslands. Ásgeir segir íbúa í Vesturbyggð og Tálknafirði hafa verið vel upplýsta um Forsetahlaupið og bæði börn og hlaupahópar hafi verið hvött til þátttöku. Ætlunin var að hafa heilmikið húllumhæ í kringum hlaupið. Veðurguðirnir voru ekki með skipuleggjendum í liði en úr rættist, því þótt skýfall hafi verið öðru hverju stytti upp einmitt á meðan hlaupararnir skiptust á að hlaupa í meðvindi og mótvindi.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.