Skinfaxi - 01.02.2023, Blaðsíða 32
32 S K I N FA X I
„Mig langar svo að segja fólkinu mínu í Póllandi frá því að ég hafi hlaup-
ið með forsetanum. Það er mjög merkilegt að geta gert það,“ segir
Joanna Pietrzyk-Wiszniewska, sem búsett hefur verið í Hnífsdal síðast-
liðin níu ár. Þegar hún frétti af Forsetahlaupi UMFÍ lét hún sig hafa það
að fara af stað klukkan sjö á laugardagsmorgni til að vera mætt til Pat-
reksfjarðar í hlaupið, sem hófst klukkan tíu. Ferðin á milli tekur þrjár
klukkustundir.
Merkilegt að geta hlaupið með forsetanum
Um 70 manns tóku þátt í Forsetahlaupi UMFÍ sem haldið var á Patreksfirði í byrjun september.
Þetta var annað skiptið sem hlaupið fór fram. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók fullan
þátt í viðburðinum og spjallaði við þátttakendur.
Þetta var fyrsta hlaup Joönnu en hún hefur gengið töluvert úti í náttúr-
unni í nágrenni Hnífsdals, Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Hún hljóp 2,5
kílómetra með fjölda fólks, sem kom mislangt að, flest frá Patreksfirði
og Tálknafirði og Bíldudal en önnur lengra frá, svo sem frá Súðavík og
Flateyri.
Forseti í meðvindi
„Við erum í skýjunum með Forsetahlaupið. Þetta var svo skemmtilegt
og gaman hve margir tóku þátt,“ segir Ásgeir Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Héraðssambandsins Hrafna-Flóka, sem stóð að Forsetahlaupinu
með UMFÍ og forsetaembættinu.
Um 70 þátttakendur í hlaupinu jafngilda um 10% af íbúum Patreks-
fjarðar. Í boði voru þrjár vegalengdir, 1 km hlaup sem margir yngstu
þátttakendurnir tóku þátt í, 2,5 km hlaup og 5 km hlaup sem nokkrir
reyndari kappar af öllum kynjum og aldri tóku þátt í. Þar á meðal var
Ásgeir, sem hljóp seinni hringinn í 5 km spretti Guðna Th. Jóhannes-
sonar, forseta Íslands.
Ásgeir segir íbúa í Vesturbyggð og Tálknafirði hafa verið vel upplýsta
um Forsetahlaupið og bæði börn og hlaupahópar hafi verið hvött til
þátttöku. Ætlunin var að hafa heilmikið húllumhæ í kringum hlaupið.
Veðurguðirnir voru ekki með skipuleggjendum í liði en úr rættist, því
þótt skýfall hafi verið öðru hverju stytti upp einmitt á meðan hlaupararnir
skiptust á að hlaupa í meðvindi og mótvindi.