Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2023, Blaðsíða 39

Skinfaxi - 01.02.2023, Blaðsíða 39
 S K I N FA X I 39 Kóngurinn í guðatölu í Bandaríkjunum Í Bandaríkjunum eru stórir hópar áhugafólks um líf og íþróttir á tímum víkinga. Glíman er órjúfanlegur þáttur af því og því nokkur eftir- spurn eftir því að fá að læra fangbrögðin. Full- trúar frá bandarísku félagasamtökunum Odin’s Warrior Tribe höfðu samband við Reyni A. Óskarsson, sérfræðing um bardagaaðferðir víkinga, og varð úr að hópur íslenskra glímu- kappa fór vestur um haf í boði samtakanna til að kenna glímu í æfingabúðum í borginni Martinsburg í Vestur-Virginíuríki í sumarlok. Æfingabúðirnar stóðu yfir í fjóra daga og voru grunnatriði glímu kennd. Samtökin Odin’s Warrior Tribe samanstanda af fyrrverandi og núverandi hermönnum sem finna styrk í samverunni og hafa áhuga á flestu sem tengist víkingum og lífi þeirra. Einar segir hópinn fara alla leið í áhugamáli sínu. Allur hópurinn sé ásatrúar, fólkið hafi reist víkingaþorp og keypt víkingaskip sem var sér- smíðað í Danmörku. Margir sem Einar hitti höfðu lesið allar þýðingar sem hægt var að komast yfir af Íslendingasögunum og Háva- málum. Féllu í stafi yfir titlinum Einar segir víkingaaðdáendur ytra hafa fallið í stafi yfir titli hans sem glímukóngs og viljað allt fyrir hann gera. „Fólk leit svo upp til mín að ég mátti ekki gerast svo djarfur að taka upp veski á veitinga- stöðum. Mér var hampað í hástert. Ég hef ver- ið í stjórn Glímusambandsins í nokkur ár en ég hef aldrei séð önnur eins viðbrögð við neinu útbreiðslustarfi hjá okkur. Þetta er fyrsta skipt- ið sem ég sé virkilega góða von fyrir okkur,“ segir Einar, sem vonar að vinsældir íslensku glímunnar í Bandaríkjunum og mögulega víðar skili sér í því að glíman verði vinsæl hér á landi á nýjan leik.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.