Skinfaxi - 01.02.2023, Blaðsíða 16
16 S K I N FA X I
„Það var ekkert mál að vera eina konan í röðum framkvæmdastjóra sam-
bandsaðila UMFÍ og ein fárra kvenna sem sátu sambandsráðsfundi og
þing á vegum hreyfingarinnar. En starfið var frumstætt og gat verið
erfitt, sérstaklega fyrir rúmlega tvítuga móður á Snæfellsnesi upp úr
1970.“ Magndís Alexandersdóttir lýsir með þeim hætti fyrstu skrefum
sínum sem kona í stjórn Héraðssambands Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu (HSH), framkvæmdastjóri sambandsins um tæplega tveggja
ára skeið og stjórnarmaður í UMFÍ í áratug.
Magndís tók sæti í stjórn HSH á héraðsþingi sambandsins í febrúar
1971. Hún tók þátt í ýmsum störfum stjórnar, var formaður þegar á þurfti
að halda, ásamt því að taka að sér starf framkvæmdastjóra HSH fyrir
Landsmótið á Akureyri 1981 og var fyrsta konan í sögu UMFÍ til að gera
það.
„Þegar ég hafði samband við framkvæmdastjóra UMFÍ og vildi leita
upplýsinga hjá honum um hvað væri fram undan og hvað ég hefði
tekið að mér lét hann mig vita að ég yrði að skila þessu starfi helmingi
betur en nokkur karlmaður hefði gert til að fá það viðurkennt. Ég lét
hann vita að ég treysti mér fullkomlega til þess og kvaddi hann þar
með. Við urðum síðar hinir mestu mátar,“ segir hún, en síðar var hún
kosin í stjórn UMFÍ.
En hvernig byrjaði þetta allt saman?
Magndís segir það hafa gerst í kringum 1970. Þá hafi komið upp hug-
mynd um að hún tæki sæti í stjórn HSH. Það hafi líka verið ákveðinn
léttir árið á undan.
„Við hjónin urðum fyrir því að dóttir okkar lést aðeins fimm daga
Ég er fædd inn í
ungmennafélags-
hreyfinguna
Magndís Alexandersdóttir var fyrsta konan til að gegna starfi
framkvæmdastjóra sambandsaðila UMFÍ. Hún stundaði íþróttir lítið
en ákvað að sinna félagsmálum eftir að hún missti nýfædda dóttur sína
Magndís fylgist enn vel með starfsemi HSH og fylgdist með á Landsmóti UMFÍ 50+ þegar það var haldið á Stykkishólmi um Jónsmessuna í ár.
Hún hefur þó aldrei keppt á mótinu.