Skinfaxi - 01.02.2023, Blaðsíða 14
14 S K I N FA X I
UMFÍ tók við rekstri Skólabúðanna á Reykjum
fyrir rétt rúmu ári. Þá var strax ráðist í umfangs-
miklar endurbætur á öllu húsnæðinu með
iðnaðarfólki á vegum sveitarfélagsins.
Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður Skólabúðanna, segir að
þótt mikið sé búið að gera í húsunum á einu ári þá hafi verið ákveðið
að halda áfram með framkvæmdir í sumar. Nú er búið að skipta um
alla glugga í heimavistinni, skipt um gólfefni á stórum hluta allra húsa,
rúmum dýnum og innanstokksmunum. Unnið verður að framkvæm-
dum áfram í vetur.
„Við ætlum að gera enn betur og lagfæra meðal annars aðstöðuna
fyrir kennara og aðra sem hingað koma,“ segir hann.
Árlega heimsækja um 3.600 nemendur í 7. bekk af öllu landinu búð-
irnar og dvelja þar frá mánudegi til fimmtudags. Í Skólabúðunum á
Reykjum er unnið markvisst að því að efla félagsfærni nemenda og
gefa þeim tækifæri til að finna styrkleika sína, vinna með þá og styrkja
leiðtogafærni sína.
Mikil endurnýjun á Reykjum
Sigurður Guðmundsson og Ingimundur Oddsson bera saman borð og aðra muni. Ingimundur hóf störf í Skólabúðunum nú í vetur.
Skólastjórnendur grunnskóla geta bókað dvöl fyrir skólahópa.
Þeir geta haft samband við Sigurð í gegnum netfangið
siggi@umfi.is.
Hver skóli þarf að manna fararstjóra með hópnum.
Æskilegt er að uppistaða fararstjórateymisins séu kennarar
nemenda sem bókað er fyrir.
Fararstjórar sjá um frívaktir og sinna nemendum í frítíma.
Starfsfólk búðanna sjá um námskeið sem eru yfirleitt frá
kl. 09:30 - 17:00 á daginn.
Nemendahópar mæta kl. 11:00 á mánudegi og brottför
er kl. 16:00 á fimmtudegi.
Nánari upplýsingar má finna á umf.is